Innlent

Bresk heimildarmynd: ESB gæti lært af íslenskum veiðimönnum

Atriði úr myndinni The end of the line.
Atriði úr myndinni The end of the line.

Breski frétta- og heimildagerðamaðurinn Charles Clover er leikstjóri heimildarmyndarinnar: The end of the line.

Myndin fjallar um fiskveiðar víðsvegar í heiminum en grunnhugmynd heimildarmyndarinnar er sú að fiskur sé í raun ekki endurnýtanleg auðlind - það sé raunverulega hætta á því að við ofveiðum alla fisk í sjónum.

Í viðtali við BBC er myndinni lýst sem dramatískri hugvekju um það hvernig við gætum eyðilagt auðlindina sem hefur reynst mannkyninu svo vel í gegnum tíðina.

Þarna sé þó ein undantekning á; nefnilega íslenskar veiðar.

Í heimildarmyndinni er Ísland tekið sem dæmið um ríki sem stundi ábyrga fiskveiðistefnu. Hér sé kvóti sem taklmarkar fiskveiðarnar auk þess sem sjómenn þurfa að lifa við ströng skilyrði stjórnvalda varðandi veiðar.

Allt þetta er talið jákvætt sé litið til heildarmyndarinnar, í samhengi við hugsanlega útrýmingu fiskveiðistofna í veröldinni líkt og er kenning myndarinnar.

Þá segir Jan Thomsen sem er í sjávarútflutningi að Evrópusambandið geti lært mikið af íslenskum sjómönnum. Hann segir að í Evrópusambandinu séu 90 prósent fisktegundanna ofveiddar á meðan 30 prósent þeirra séu í verulega vondu ásigkomulagi innan sambandsins.

„Ég er nokkurð viss um að þeir gætu lært ýmislegt af Íslendingum," segir Jan Thomsen.

Lesa má greinina í heild sinni hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×