Litháarnir tengjast allir komu stúlkunnar 23. október 2009 06:00 SKIPULÖGÐ GLÆPASTARFSEMI Margir glæpahópar hérlendis falla undir skilgreiningu evrópsku lögreglunnar Europol um skipulagða glæpastarfsemi. Þar á meðal eru pólskir, litháískir og íslenskir glæpahópar með tengsl erlendis. Þetta kom fram á blaðamannafundi í gær. Á myndinni eru, frá vinstri: Jóhannes Jensson aðstoðaryfirlögregluþjónn, Alda Hrönn Jóhannsdótttir, staðgengill lögreglustjóra, Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á Suðurnesjum, og Arnar Jensson, tengslafulltrúi hjá Europol. fréttablaðið/gva
Litháarnir sem sitja í gæsluvarðhaldi vegna meints mansalsmáls á Suðurnesjum tengjast allir komu nítján ára litháískrar stúlku hingað til lands fyrr í mánuðinum. Þrír Íslendingar sem sitja einnig í gæslu tengjast allir Litháunum, að hluta til í gegnum atvinnustarfsemi, en einnig með öðrum hætti sem lögregla rannsakar nú. Mansal, tryggingasvik, ofbeldisbrot, fíkniefnabrot, skjalafals og peningaþvætti eru til rannsóknar hjá lögreglunni vegna málsins. Lögreglan rannsakar einnig hvort um skipulegt mansal sé að ræða hér á landi. Þetta kom fram á fundi Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur, lögreglustjóra á Suðurnesjum, með blaðamönnum. Fundinn sat einnig Arnar Jensson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og tengslafulltrúi hjá Europol. Fram kom hjá lögreglustjóranum að lögreglan útilokaði ekki að fleiri þolendur mansals væru hér á landi. Þá útilokaði hún ekki heldur frekari handtökur eða húsleitir. Arnar sagði að mansal hefði að undanförnu verið að færast ofar á lista Europol sem ógn sem stafaði af skipulagðri glæpastarfsemi í Evrópu. „Í dag er mansal talið vera næstmesta ógnin,“ sagði hann. „Eiturlyf eru í fyrsta sæti, mansal í öðru sæti. Þetta er gert á grundvelli hættumats sem Evrópusambandið gerir einu sinni á ári í samvinnu við öll aðildarlöndin og þau lönd sem starfa með Europol.“ Arnar sagði að stofnaður hefði verið sérstakur vinnuhópur um mansal hjá Europol, þar sem meðal annars væru sérfræðingar í málaflokknum svo og greiningarsérfræðingar. Hugmyndin væri að Ísland tengdist fljótlega þessum vinnuhópi og gerðist þar með fullgildur aðili að evrópsku samstarfi á sviði löggæslu um mansalsmál.
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Sjá meira