Lífið

Jón Ásgeir fellur niður um klassa

Valur Grettisson skrifar
Jón Ásgeir ferðast á milli landa með Economy comfort.
Jón Ásgeir ferðast á milli landa með Economy comfort.

Auðkýfingurinn Jón Ásgeir Jóhannesson flaug til Englands í síðustu viku en athygli vakti að hann nýtti sér ekki lúxus rýmið Saga Class, heldur flaug hann á Economy Comfort. Á heimasíðu Icelandair er ferðamátanum lýst svona:

Economy Comfort er almennur fargjaldaflokkur þar sem farþegar er boðið upp á meiri þjónustu og meira rými en á almennu farrými. Einungis eru fjögur sæti í hverri sætaröð í stað sex á almennu farrými auk þess sem lengra bil er á milli sæta sem gefur meira pláss fyrir fætur. Economy Comfort hentar því vel til viðskiptaferða. Boðið er uppá máltíð og eru óáfengir drykkir, léttvín og bjór innifalið.

Samkvæmt heimildum Vísis var Jón Ásgeir afundinn þegar á fluginu stóð og lét lítið fyrir sér fara. Hann hefur hingað til verið þekktari fyrir að fljúga á milli landa í glæsilegri einkaþotu.

Economy Comfort er skör neðar en Saga Class, sem er besti fáanlegi ferðamátinn á milli landa með flugfélaginu Icelandair. Þess má þó geta að fljúgi menn með Economy Comfort innan Evrópu þá gefur það sex þúsund til sjö þúsund vildarpunkta. Ef farþegi flýgur til Norður-Ameríku þá fær sá hinn sami rúma áttaþúsund til tæplega tíu þúsund vildarpunkta.

Efnahagshrunið hefur komið illa við Jón Ásgeir og fjölskyldu. Baugur er kominn í greiðslustöðvun en fyrir helgi sótti félagið eftir framlengingu á greiðslustöðvuninni í Héraðsdómi Reykjavíkur. Íslandsbanki og gamli Glitnir lögðust gegn því og vildu félagið í þrot. Málinu var því frestað þar til í morgun, en þá fór málflutningur fram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.