Ofbeldismaður víki í stað brotaþola 28. október 2009 05:30 Ásu Ólafsdóttur, aðstoðarmaður dómsmála- og mannréttindaráðherra.
Unnið er að lögfestingu brottvísunar eða „austurrísku leiðarinnar" í dómsmálaráðuneytinu. Þetta kom fram í máli Ásu Ólafsdóttur, aðstoðarmanns dómsmála- og mannréttindaráðherra, á fræðafundi lagadeildar Háskólans í Reykjavík í gær. Aðrir frummælendur á fundinum voru Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins. Ísland er nú eina Norðurlandaþjóðin sem ekki hefur brottvísunarúrræði í lögum. Ása telur að brottvísunarákvæðið styrki verulega lög um nálgunarbann sem tóku gildi í upphafi þessa árs. Hún telur nauðsynlegt að brottvísunarákvæðið fylgi nálgunarbanninu og bendir á að í nágrannalöndum okkar hafi brottvísunarákvæðið komið í kjölfar lagasetningar um nálgunarbann. Ása telur brottvísunina gott tæki en spáir því jafnframt að það verði ekki mikið notað. Stefán Eiríksson telur að brottvísunarákvæðið hafi reynst vel í þeim löndum þar sem það hefur verið tekið upp. Hann tók undir það sjónarmið Ásu að líklegt væri að brottvísunarákvæðinu yrði beitt í fáum tilvikum en aðeins eitt tilvik þar sem brottvísun væri lausn réttlætti lögleiðingu hennar. Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins, benti á að ábyrgðin ætti að liggja þar sem hún ætti heima, hjá ofbeldismanninum. Að hennar mati er það óviðunandi að kona sem verði fyrir heimilisofbeldi, og börn hennar, þurfi að glíma við hvunndaginn í framandi umhverfi á sama tíma og tekist er á við gerbreyttar aðstæður og framtíðarsýn, eins og gerist hjá konu sem hefur ákveðið að segja skilið við heimilisofbeldi. Sigþrúður leggur áherslu á að ofbeldismaður sé fjarlægður af heimili en að honum sé boðin hjálp til að takast á við erfiðleika sína og jafnvel athvarf til að búa í. - ss
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Innlent Fleiri fréttir Furðuísar hjá Kjörís og 70 ára afmæli Heilsustofnunar Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Eldur á svölum reyndist vera íbúi að grilla Rýnt í fund Trump og Pútíns og jakkafataklæddir raðmaraþonhlauparar „Það hefði auðvitað verið betra“ Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Grunaðir um hópárás með kylfu Funda með foreldrum barna á Múlaborg á morgun Vilja stórefla samgöngur á Vesturlandi Sóttu mann sem féll niður bratta Hátt í þrjú hundruð mótmæla útlendingastefnu stjórnvalda Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Íslendingur lést vegna hitaslags Ókeypis veðmálasíður „ekki eins og áfengislaus bjór“ „Staðan er alvarleg en við vitum ekki hversu alvarleg hún er“ Vatn flæddi upp úr klósettum og niðurföllum Stuð og stemning á fjölskyldudögum í Vogum Fagna sekt vegna veðmálaauglýsinga og tjón eftir vatnsveður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Talsverðar skemmdir eftir mikinn eld í Hafnarfirði Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Sveitastjórn Rangárþings ytra gefur út framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Vatnstjón á Kjarvalsstöðum og sautján öðrum stöðum Kynferðisbrot á leikskóla og tímamótafundur forseta Líkamsárás á borði lögreglu Hjólhýsi hafa „sprungið“ á Holtavörðuheiðinni Sjá meira