Innlent

Skattar álfyrirtækja 1,9 milljarðar í fyrra

Álver Alcoa í Reyðarfirði. Tómas Már segir að það standi óhaggað að beinar tekjur opinberra aðila af starfsemi álversins hafi verið tæpir fjórir milljarðar í fyrra.
MYND/ALCOA
Álver Alcoa í Reyðarfirði. Tómas Már segir að það standi óhaggað að beinar tekjur opinberra aðila af starfsemi álversins hafi verið tæpir fjórir milljarðar í fyrra. MYND/ALCOA

Álfyrirtæki á Íslandi greiddu samtals um 1,9 milljarða í tekjuskatt og tryggingagjald á síðasta ári. Þetta segir Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra og fyrrverandi ríkisskattstjóri, og vísar til upplýsinga frá embætti Ríkisskattstjóra.

Fjármálaráðuneytið óskaði eftir upplýsingum um þetta eftir að haft var eftir Tómasi Má Sigurðssyni, forstjóri Alcoa á Íslandi, í Morgunblaðinu að beinar skattgreiðslur fyrirtækisins í fyrra hefðu numið um fjórum milljörðum króna, að ónefndum hafnargjöldum og raforkureikningum.

„Ég veit ekki hvað Tómas Már á við,“ segir Indriði. „En við báðum bara um upplýsingar frá Ríkisskattstjóra, um hver álagningin á álfyrirtækin hefði verið í ár og í fyrra, því að þessi stóra tala kom okkur dálítið spánskt fyrir sjónir miðað það sem við töldum okkur vita.“

Í ljós hafi komið að í fyrra hafi öll álfyrirtæki á Íslandi greitt samtals 1.335 milljónir í tekjuskatt og 566 milljónir í tryggingagjald, samtals 1.901 milljón. Fyrirtækin eru átta ef bæði eru talin rekstraraðilarnir og eignar­haldsfélögin sem þá eiga. Ekki fæst gefið upp hversu mikið einstök fyrirtæki greiddu í skatt.

Tómas Már segir að hægt hafi verið að misskilja það þegar hann hafi talað um beinar skattgreiðslur í viðtalinu í Morgunblaðinu, þar sem hann brást við ræðu félagsmálaráðherra á ársfundi ASÍ.

„Ég var að tala um beinar tekjur opinberra aðila af starfsemi Alcoa Fjarðaáls, í gegnum hinar ýmsu leiðir sem skatturinn berst opinberum aðilum,“ segir Tómas. Þar eigi hann meðal annars við skattgreiðslur af launum starfsmanna, gjöld sveitarfélaga og fleira.

Að teknu tilliti til þess standi upphæðin, tæpir fjórir milljarðar, óhögguð. Inni í þeirri tölu séu hafnargjöld. Þá eigi hins vegar eftir að taka saman afleiddar skatttekjur af þjónustunni sem þeir kaupa annars staðar, en Alcoa Fjarðaál keypti þjónustu fyrir um tíu milljarða í fyrra. Raforkukaup séu einnig undanskilin. „Þannig að þetta er í raun miklu meira þegar allt er talið,“ segir Tómas.

stigur@frettabladid.is

Indriði H. Þorláksson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×