Niðurskurðarhnífnum ekki beitt af nægjanlegri hörku 28. október 2009 06:15 Mynd/Anton Brink
Aðgerðir sem gripið var til um mitt ár til að hemja kostnað og bæta afkomu ríkissjóðs hafa ekki skilað tilætluðum árangri, að mati Ríkisendurskoðunar. Heildargjöld ríkisins á árinu eru nú áætluð 33 milljörðum króna hærri en fjárlög ársins kváðu á um. Þau verða 589 milljarðar í stað 556 milljarða í fjárlögum. Munurinn skýrist til jafns af hærri vaxtagjöldum og hærri gjöldum ráðuneyta, að sögn Ríkisendurskoðunar. Skýrsla stofnunarinnar um framkvæmd fjárlaga fyrstu átta mánuði ársins kom út í gær. Í henni segir að almennt hafi ekki verið farið að tilmælum Ríkisendurskoðunar frá því um mitt ár um tafarlaus viðbrögð til að bæta stöðu stofnana sem glíma við rekstrarvanda. Þó eru þrjár stofnanir nefndar þar sem rekstur hefur verið tekinn föstum tökum: Háskólinn á Akureyri, Námsmatsstofnun og Raunvísindastofnun HÍ. Ástandið er hins vegar hvað verst hjá Landspítalanum, Landbúnaðarháskólanum og Hólaskóla. Í skýrslunni segir að ráðuneytin hafi gefið undirstofnunum sínum mismunandi skilaboð um hvernig farið skuli með ónýttar fjárheimildir frá síðasta ári. Sum ráðuneyti hafi sett skorður við nýtingu slíkra heimilda en önnur leyft að þær væru fluttar milli ára. Ríkisendurskoðun gagnrýnir að stjórnvöld hafi ekki samræmt ákvarðanir í þessu efni. Þá gagnrýnir stofnunin að hvorki sé fjallað um skuldbindingar vegna Icesave í fjárlögum né fjáraukalögum. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Innlent Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Innlent Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Innlent Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Erlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Innlent Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Innlent Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Innlent Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Innlent Fleiri fréttir Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Helmingur gæti ekki mætt 100 þúsund króna útgjöldum Bein útsending: Svarar fyrir skipulagsbreytingar á framhaldsskólum Bein útsending: Ræða markmiðadrifði hagkerfi í þaula Rifjaði upp erfitt augnablik frá 1994 til að skjóta á mótherja Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Sjá meira