Mikil óvissa er um orkuna á Reykjanesi 28. október 2009 06:00 Virkjað á Reykjanesi. Orkumálastjóri telur óheppilegt að ræða um að öll orka fyrir álver í Helguvík komi frá Reykanesinu, enda séu miklir óvissuþættir tengdir jarðhitanum.Fréttablaðið/valli
Mikil óvissa ríkir um hve mikla orku úr jarðhita er að finna á Reykjanesinu og það er óheppilegt þegar rætt er um að öll orka fyrir álverið í Helguvík þurfi að koma af Reykjanesinu sjálfu, segir Guðni A. Jóhannesson orkumálastjóri. Slík nálgun leiði ekki af sér sjálfbæra nýtingu jarðhitakerfisins. „Við viljum ekki endilega taka eitt eða tvö jarðhitasvæði og fullnýta þau fyrir eitthvert eitt iðnfyrirtæki. Við viljum hafa fleiri svæði á landinu undir, þar sem er verið að virkja og þróa sig áfram hverju sinni. Við viljum byrja á því að virkja fleiri jarðhitakerfi og gera það hægar. Eftir því sem við virkjum þau hægar þeim mun betra. Við virkjum minni áfanga í einu og lærum á svæðið áður en við bætum við,“ segir hann. Annað myndi gilda ef um vatnsaflsvirkjanir væri að ræða, þar sem orkuöflun úr þeim megi reikna auðveldlega út. „En það er í raun ekkert vitað [um orkumagnið] fyrr en byrjað er að virkja. Ef við skoðum virkjunarsögu Hengilsins sýnir hún að sum verkefni hafa gefið minna af sér en spár gerðu ráð fyrir, en önnur meira,“ segir Guðni. „Það eina sem við höfum á að byggja er reynsla okkar þaðan sem nú þegar er búið að virkja.“ Reynslan af jarðhitavirkjunum síðustu tíu ára eða svo gefi þó tilefni til bjartsýni. Hún hafi gengið mjög vel. „Við höfum fengið meira úr jarðhitavirkjunum frekar en hitt, þótt það hafi verið breytilegt í einstökum virkjanaáföngum. Við getum sagt að þegar við förum að virkja svæðin sjáum við meiri möguleika í þeim en áður,“ segir hann. klemens@frettabladid.is
Mest lesið Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Mikil spenna í veðurkortunum Innlent Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Innlent Vonbrigði ef ballið er búið á Hótel Flatey Innlent Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Innlent Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Innlent Auglýsir eftir einstaklingi sem angar af Dior-ilmvatni Innlent Fleiri fréttir Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Valdimar kveður sáttur en segir síðustu daga krefjandi Sjá meira