Skaðabótamál ríkisins yrðu ekki síst táknræn 16. desember 2009 03:45 Á góðri stundu Björgólfur Guðmundsson var formaður bankaráðs Landsbankans og Davíð Oddsson formaður bankastjórnar Seðlabankans. Til skoðunar er hvort brotleg eða gáleysisleg framganga tiltekinna einstaklinga eða lögaðila hafi leitt til tjóns fyrir íslenska ríkið og hvort það geti höfðað skaðabótamál á hendur viðkomandi. Icesave Landsbankans og ástarbréf Seðlabankans eru meðal þess sem skoðað er. fréttablaðið/gva
Mögulegar málsóknir á hendur þeim sem sýna má fram á að hafi valdið ríkinu og almenningi fjárhagslegu tjóni með athöfnum sínum í aðdraganda bankahrunsins yrðu ekki síst táknræns eðlis. Fréttablaðið greindi frá því á laugardag að athugun á slíkum málsóknum sé hafin. Löglærðir starfsmenn fjögurra ráðuneyta sitja í starfshópi sem lýtur forræði fjármálaráðuneytisins. Sérfræðingar á sviði skaðabótaréttar koma einnig að matinu. Viðmælendur blaðsins, innan og utan stjórnsýslunnar, segja það vitaskuld fjarstæðu að ríkissjóður geti endurheimt alla þá peninga sem á hann féllu vegna bankahrunsins. Því verði málsóknir bæði til að sýna fram á að réttlætis sé gætt auk þess sem þær yrðu eðlileg hagsmunagæsla þjóðarbúsins. Óumdeilt er að ríkið varð fyrir stórtjóni við bankahrunið. Á það hafa fallið gríðarlegar skuldbindingar vegna ýmissa viðskipta banka og taps Seðlabankans vegna lánveitinga til þeirra. Hleypur tjónið á hundruðum milljarða. Sönnunarkröfur í skaðabótamálum eru með öðrum hætti en í opinberum málum. Ef fyrirliggjandi gögn sýna brotlega eða gáleysislega framgöngu tiltekinna einstaklinga eða lögaðila sem leitt hefur til tjóns fyrir íslenska ríkið er unnt að huga að skaðabótamálum án þess að afráða þurfi fyrst um refsinæmi háttseminnar. Sönnunarkröfurnar í einkamáli eru vægari en í refsiréttarmáli en engu að síður verður sá sem heldur fram skaðabótaskyldu annars að sýna fram á sannanir því til stuðnings. Ljóst er að málshöfðun vegna skaðabótakröfu ríkisins þarfnast mikils undirbúnings og viðbúið að málsmeðferð tæki langan tíma fyrir dómstólum. Lögfræðingar, sem Fréttablaðið ræddi við, segja að ríkið verði að geta sýnt með nákvæmum hætti fram á skaða og tengsl sakbornings við ákveðnar aðgerðir eða verk sem unnin voru í viðskiptabönkunum eða í opinberum stofnunum. Málsvörnin gæti svo falist í að allt sem viðkomandi gerði hafi rúmast innan ramma laganna. Ekki liggur fyrir hvenær nefnd ráðuneytanna skilar af sér mati og tillögum til fjármálaráðherra. Henni eru ekki sett tímamörk. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Innlent „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Innlent Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Innlent Slökkt á eldsneytisflæði rétt eftir flugtak og ruglingur milli flugmanna Erlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Innlent Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Innlent Spá hitabylgju í byrjun næstu viku og allt að 29 stigum Veður Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fleiri fréttir „Kom hvergi nærri samræði hans við barnunga stúlkuna“ Maður leiddur út í járnum í lögregluaðgerð í Tryggvagötu Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Sjá meira