Fjöruborð við Vík langt innan marka 2. september 2009 04:15 Fjaran við Vík. Landbrot undan ágangi sjávar er stöðugt við Vík í Mýrdal og segjast heimamenn orðnir uggandi. Fréttablaðið/Valli „
Fari saman stórstreymi, háflóð, hvassviðri og þung alda eru mannvirki fyrir hundruð milljóna í stórhættu,“ segir sveitarstjórn Mýrdalshrepps og kveðst hafa sýnt einstakt langlundargeð í að bíða eftir endurbótum á sjóvarnargarði við Vík. Að sögn Mýrdælinga hefur sífellt brotið af landinu og fjöruborðið nálgast nú Vík. Opinberir aðilar gerðu áætlun um sjóvörn við Vík árið 1994. „Þá voru sett viðmiðunarmörk um hvenær skyldi ráðist í sjóvarnir og miðuðust þau mörk við að verja mannvirki áður en þau væru í yfirvofandi hættu. Landbrotið hefur að meðaltali verið sjö til tíu metrar á ári undanfarin ár. Á árunum 1990-1993 var landbrotið allt að 42 metrar á ári að meðaltali. Fjöruborðið er nú komið langt inn fyrir viðmiðunarmörk án þess að fjármagn hafi verið tryggt í framkvæmdina,“ segir í ályktun sveitarstjórnarinnar. Í bréfi til Mýrdalshrepps kemur fram að fjármögnun sjóvarnargarðs við Vík verði rædd við endurskoðun samgönguáætlunar sem nú standi yfir. Bréfið var rætt á síðasta sveitarstjórnarfundi. „Á undanförnum árum hefur orðið umtalsvert eignatjón vegna sandfoks sem erfiðara hefur reynst að hemja eftir því sem landrými minnkar. Sveitarstjórn lýsir fullri ábyrgð á hendur samgönguráðuneyti og ríkisstjórn verði ekki tryggt að framkvæmdir hefjist þegar á fyrri hluta ársins 2010.“ - gar
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Fleiri fréttir Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sjá meira