Lífið

Detoxmeðferðarstöð Jónínu Ben á Reykjanesi

Skrifað undir samninginn
Skrifað undir samninginn
Detox ehf., Heilsufélag Reykjanes og Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar hafa gert með sér samstarfssamning um uppbyggingu á detoxmeðferðarstöð á Reykjanesi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjanesbæ en þar segir að meðferðarstöðin sé liður í sameiginlegri sýn Heilsufélags Reykjanes sem áæltað sé að muni skapa 300 störf í heilsutengdum tækifærum næstu þrjú árin. Markmið félagsins séu fóglin í markaðssetningu Íslands sem lands hreysti, fegurðar og heilsu en talið er að heilsutengd ferðaþjónusta munu leiða til aukinnar fjölbreytni atvinnulífs á Reykjanesi og skapa ný störf og auknar gjaldeyristekjur.

Að heilsufélagi Reykjanes standa sveitarfélögin Garður, Sandgerði, Reykjanesbær og Vogar auk Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, Bláa Lónsins og Keilis - Miðstöðvar vísinda, fræða og atvinnulífs.

Detox Jónínu Ben verður staðsett á Lindarbraut í Reykjanesbæ, í nýstofnuðu heilsuþorpi sem rísa mun á svæði Ásbrúar en fjölmargir aðilar hafa þegar sýnt mikinn áhuga á því að taka þátt í uppbyggingu byggðri á slíkri hugmyndafræði."

Aðilar samningsins munu vinna að frekari þróun og uppbyggingu verkefnisins á svæðinu. Heilsufélag Reykjaness leggur til umgjörð verkefnisins í samræmi við markmið félagsins auk þess að sjá um samþættingu við aðra slíka starfsemi sem byggð verður upp á svæðinu.

Detox meðferðarstöðin verður opin allan ársins hring, allan sólarhringinn og er gert ráð fyrir því að starfsemin hefjist af fullum krafti í maí.

Jónína Benediktsdóttir hefur mikla reynslu og þekkingu á þeirri aðferðafræði sem notuð er í meðferðinni og hefur undanfarin 3 ár leitt rúmlega 2.500 Íslendinga í gegnum detox meðferðina í Póllandi með mjög góðum árangri. Nú hefur Jónína í samstarfi við Sigrúnu Kjartansdóttur ákveðið að víkka út starfsemina og bjóða einnig upp á meðferðina á Íslandi. Höfuðstöðvarnar og aðal meðferðarstöðin verður á Reykjanesi en samhliða verður einnig boðið upp á detox meðferðir á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit (yfir vetrartímann) og á Hótel ELF í Póllandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.