Óvíst hver á að reka tónlistarhúsið Ingimar Karl Helgason. skrifar 7. apríl 2009 11:52
Áætlað er að tónlistar og ráðstefnuhúsið verði opnað eftir tvö ár. Það á hins vegar ekki að ráðast fyrr en eftir fimm ár hver á að reka eða eiga húsið. Viðbúið er að stór og djúpur grunnur við hlið tónlistarhússins verði opinn næstu árin. Málefni tónlistar og ráðstefnuhússins hafa farið á nokkuð annan veg en ætlað var í upphafi. Gamli Landsbankinn og Nýsir ætluðu í gegnum félagið Portus að standa að byggingu hússins, í samstarfi við félag ríkis og borgar, Austurhöfn. Nú er þetta alfarið komið í hendur ríkis og borgar. Raunar ekki bara tónlistarhúsið, því Gamli Landsbankinn og Nýsir höfðu líka áform um hótel, Reykavík World trade center og fleira, í gegnum félagið Sítus, sem borg og ríki hafa líka yfirtekið. Fréttastofa hefur undir höndum samning um yfirtöku ríkis og borgar á Portusi, Sítusi og byggingarrétti á hafnarbakkanum. Þar kemur meðal annars fram að nokkur óvissa ríkir um framhald verkefna. Þar segir að í kjölfar samningsins eigi að meta hvaða eignarhalds og rekstrarforsendur henti verkefninu best. Til álita komi að bjóða út rekstur tónlistar og ráðstefnuhússins til óskylds aðila, en einnig að dótturfélög Portusar, sem er nú í opinberri eigu, eigi og reki verkefnið þangað til það verð selt í heild sinni. Fimm ár eru gefin í samningnum til að ganga frá þessum málum. Til stendur að opna tónlistarhúsið eftir tvö ár. Þá er enn fremur óvissa um byggingasvæðið. Mikill grunnur er opinn á lóðinni við hlið tónlistarhússins, eins og margir hafa tekið eftir. Stefán Hermannsson, framkvæmdastjóri Austurhafnar, segir óvíst hvenær eitthvað verður gert við grunninn.
Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Fleiri fréttir Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Sjá meira