Niðurskurðurinn verður þjóðfélaginu dýrkeyptur 21. október 2009 21:44 Mynd úr safni
Stjórn BSRB krefst þess að stjórnvöld virði yfirlýsingar sem þau hafa gefið um að verja störf og kjör láglauna- og meðaltekjufólks. Lítils samræmis virðist gæta milli stefnumörkunar stöðugleikasáttmálans sem ríki og sveitarfélög skrifuðu undir í júní og hvernig niðurskurður opinberra aðila birtist í framkvæmd. Mörg sveitarfélög hafa gripið til uppsagna starfsfólks og skert grunnþjónustu þrátt fyrir að þau hafi lýst því yfir með undirritun stöðugleikasáttmálans að þau myndu forðast það. Þetta kemur fram í ályktun Sjúkraliðafélags Íslands. Þá segir ennfremur að í stöðugleikasáttmálanum segi orðrétt: „Í þeim aðhaldsaðgerðum sem sveitarfélögin standa frammi fyrir munu þau leggja áherslu á að verja grunnþjónustuna og störfin sem kostur er." BSRB krefst þess að sveitarfélögin standi við yfirlýsingar sínar. Í ályktuninni segir að BSRB mótmæli því harðlega að kjör starfsmanna með minna en 400 þúsund krónur í laun séu skert enda ber slíkt ekki að gera samkvæmt ríkisstjórnarsamþykkt frá 18. ágúst sl. „Í þeirri samþykkt kemur fram varðandi starfsmenn með yfir 400 þúsund króna heildarlaun á mánuði að haft skuli samráð við viðkomandi ráðuneyti og stofnanir þegar farið er yfir samsetningu heildarlauna og vinnufyrirkomulag. Markmiðið með því er að laun þeirra sem mest bera úr býtum rýrni hlutfallslega meira en hjá þeim sem lægri laun hafa. Dæmi eru hins vegar um að heildarlaun allt niður í 250 þúsund krónur séu skert. Þessu mótmælir stjórn BSRB harðlega. Stjórn BSRB mótmælir því að vegið sé að almannaþjónustunni. Reynsla annarra þjóða sem gengið hafa í gegnum efnahagskreppur hefur sýnt að öflug almannaþjónusta er aldrei mikilvægari en á slíkum tímum. Niðurskurður í starfsmannamálum í því skyni að bæta fjárhagsstöðu ríkis og sveitarfélaga mun bitna á almannaþjónustunni og verða þjóðfélaginu afar dýrkeyptur. Í stöðugleikasáttmálanum er kveðið á um að verja eigi „störf jafnt á almennum vinnumarkaði sem og hjá hinu opibera eins og aðstæður leyfa." Þrátt fyrir þessa yfirlýsingu eru að berast fregnir af því að segja þurfi upp allt að 400 til 500 starfsmönnum vegna niðurskurðar hjá einstökum stofnunum. Þegar starfsfólki er fækkað eykst álagið verulega á þá sem eftir standa því verkefnin hverfa ekki. Slíkt eykur hættu á að mistök geti átt sér stað t.d. á heilbrigðisstofnunum þar sem álag á starfsfólk er nú þegar komið langt yfir þolmörk," segir í ályktuninni.
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Sjá meira