Séra Örn styður biskup gegn séra Gunnari 19. október 2009 20:45 Séra Örn Bárður Jónsson.
Presturinn Örn Bárður Jónsson þakkar Davíð Þór Jónssyni guðfræðinema, fyrir pistil í Fréttablaðinu í dag og lýsir yfir stuðningi við afstöðu biskups Íslands í umdeildu máli séra Gunnars Björnssonar sem hefur verið færður til í starfi.. Séra Örn Bárður er fyrsti presturinn til þess að koma opinberlega fram og lýsa yfir stuðningi við ákvörðun biskupsins sem áður hafði verið mótmælt harðlega, meðal annars af prestum. Í færslu sem Örn ritar um málið á heimasíðu sína segir: „Ég þykist vita að meiri hluti presta styðji biskup í málinu og kem hér með á framfæri afstöðu minni en ég tel að framferði séra Gunnars sé brot á siðareglum presta og geri það að verkum að hann geti ekki starfað sem prestur í söfnuði." Tilurð þess að hann ritar þetta á heimasíðu sína er ekki síst vegna pistils sem Davíð Þór Jónsson skrifaði í Fréttablaðið í dag. Séra Örn sendi honum þessa línu í kjölfarið: „Heill og sæll og þakka þér mergjaðan og aldeilis frábæran pistil í Fréttablaðinu í dag. Orð í tíma töluð. Af gefnu tilefni skal það tekið fram að sóknarprestur þinn gekk á fund biskups fyrir nokkru og lýsti yfir stuðningi við afstöðu hans í málinu. Jafnframt neitaði sá hinn sami beiðni prests nokkurs um að skrifa undir yfirlýsingu þeirra sem vildu styðja sr. Gunnar sem á endanum voru þó ekki nema 10." Séra Örn Bárður vakti gríðarlega athygli þegar hann skrifaði sjálfur nokkuð magnaða smásögu sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins árið 1999. Hún hét Íslensk fjallasala H/F. Hún var myndskreytt og minnti aðalsögupersónan mikið á Davíð Oddsson, þáverandi forsætisráðherra. Pistil Davíðs má hinsvegar lesa hér.
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Innlent Fleiri fréttir „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Sjá meira