Barnalán á gjalddaga sama ár og Icesave afborganir Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 14. júlí 2009 17:24 Gunnar Thoroddsen, forsætisráðherra þegar barnalánin voru tekin. Mynd/GVA
Tiltölulega stór lán eru á gjalddaga árið 2016, sama ár og afborganir af Icesave láninu eiga að hefjast. Um er að ræða lán í tvennu lagi frá árunum 1981 og 1983 að upphæð fimmtán milljónir punda í hvort skipti, alls þrjátíu milljónir. Lánin voru tekin í ríkisstjórnartíð Gunnars Thoroddsen í efnahagsþrengingum 9. áratugarins og voru uppnefnd barnalánin, þar eð börn þeirra sem tóku þau kæmu til með að greiða af þeim. Útefandi lánsins er Royal Bank of Scotland samkvæmt Seðlabanka Íslands, en breski bankinn Hambros hafði milligöngu um það. Í frétt Morgunblaðsins frá janúarmánuði 1981 er raunar sagt frá að ýmsir lífeyrissjóðir og tryggingafélög í Bretlandi hafi lánað féð. Það hafi verið í fyrsta sinn síðan 1968 sem Ísland sló lán í sterlingspundum. Lánið ber 14,5 prósent vexti sem greiddir eru árlega, en lánið er í fullum skilum. Það merkir að á gengi dagsins í dag eru árlegar vaxtagreiðslur lánsins meira en 900 milljónir. Lánasamningurinn er ekki uppsegjanlegur og því hefur það ekki verið endurfjármagnað á hagstæðari vaxtakjörum. Lánið er þó ekki verðtryggt, svo verðmæti þess minnkar með hverju árinu, eftir því sem verðbólga er ufram veikingu krónunnar, eða krónan styrkist. Afborgunin árið 2016 kemur því til með að nema um 7,1 milljarði króna á gengi dagsins í dag. Aðspurður segir Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, að ekki hafi verið gerðar sérstakar ráðstafanir vegna lánsins. „Þetta lán er ekki mjög stór hluti heildarskulda ríkissjóðs," segir Indriði og segir líklegt að það verði greitt upp til að losna undan vaxtagreiðslunum.
Mest lesið Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Innlent Fleiri fréttir Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sólheimar segja upp þjónustusamningnum „Þegar allt þrýtur þá ganga gerendur lengra og lengra“ Sjá meira