Innlent

Hundasýning á 40 ára afmæli HRFÍ

Mynd/ Stefán

Hundaræktarfélag Íslands heldur upp á 40 ára afmæli sitt um þessar mundir og í tilefni af því er blásið til glæsilegrar hátíðar í Reiðhöll Fáks í Víðidal í kvöld. Boðið verður upp á ýmsa fyrirlestra og fróðleik og stendur dagskáin frá klukkan 17:00 til 22:30.

Á meðal þess sem boðið verður upp á má nefna hunda sem draga bíl, sporhunda að leika listir sínar og smalahunda að smala saman öndum.

Þar fyrir utan verður boðið upp á fyrirlestra af margvíslegu tagi sem snúa að uppeldi hunda og hundarækt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×