Metfjöldi framseldur til Bandaríkjanna Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. nóvember 2009 08:48 Felipe Calderon, forseti Mexíkó.
Aldrei hafa fleiri afbrotamenn verið framseldir frá Mexíkó til Bandaríkjanna en á þessu ári. Bara núna um helgina framseldu mexíkósk yfirvöld ellefu manns yfir til nágranna sinna í norðri, Bandaríkjamanna, og hafa þá eitt hundrað manns verið framseldir það sem af er þessu ári en allt árið í fyrra varð fjöldi framseldra 95 sem var met þá. Stjórn Felipe Calderon, forseta Mexíkó, hefur verið iðin við að framselja afbrotamenn sem eiga yfir höfði sér ákærur á bandarískri grundu þar sem bandarísk fangelsi þykja mun heppilegri en þau mexíkósku til vistunar þeirra. Mikið er um að afbrotamönnum auðnist að sleppa úr fangelsunum í Mexíkó og ekki er minna um að þeir haldi áfram að brjóta af sér meðan á afplánun stendur. Af þeim ellefu sem framseldir voru um helgina eiga fjórir yfir höfði sér ákærur vegna fíkniefnamála en hinir fyrir rán, morð og aðra glæpi í fimm ríkjum Bandaríkjanna. Saksóknarinn Eric Holder segir framsalsmálin senda skýr skilaboð til bandarískra afbrotamanna um að þeim nægi ekki að forða sér yfir landamærin og til Mexíkó til að sleppa undan réttvísinni.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira