Fyrsta geimhótelið opnar 2012 Atli Steinn Guðmundsson skrifar 2. nóvember 2009 08:42 Listamenn hafa séð geimhótel fyrir sér með ýmsum hætti.
Spænskt fyrirtæki stefnir á að opna fyrsta geimhótelið árið 2012. Það heitir Galactic Suite Space Resort og nóttin kostar milljón evrur, litlar 184 milljónir króna. Þó er kannski hæpið að tala um ákveðið verð miðað við nótt á þessu sérstaka hóteli þar sem það þýtur með 30.000 kílómetra hraða á klukkustund í 450 kílómetra hæð eftir sporbaug sínum og fer heilan hring um jörðina á 80 mínútum. Væntanlegir gestir munu því sjá sólarupprás 15 sinnum á dag sem vafalítið myndi rugla flesta í ríminu. Í verðinu fyrir gistinguna er innifalin átta vikna þjálfunardvöl á hitabeltiseyju því fólk skreppur ekki út í geiminn og húrrar þar marga hringi kringum jörðina án þess að hafa æft sig töluvert fyrir þá miklu lífsreynslu. Xavier Claramunt, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir mikla framtíð felast í geimhótelbransanum og hefur samið við Virgin Galactic, fyrirtæki breska auðjöfursins Richards Branson, um að annast ferðir með hótelgesti upp og niður. Fargjaldið er ekki nema 200.000 dollarar, eða tæpar 25 milljónir króna, sem er dropi í hafið í samanburði við gistinguna sjálfa. Hótelið mun til að byrja með aðeins rúma sex manns, fjóra gesti og tvo geimfara sem stjórna ferðinni, og miðað við fyrstu tölur verður nóg að gera þar sem 200 manns hafa látið í ljós áhuga á gistingu og 43 þegar pantað herbergi ef hægt er að tala um herbergi í þessu fyrirbæri sem væntanlega tekur á móti fyrstu gestum sínum árið 2012 ef allt gengur að óskum.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Fleiri fréttir Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Sjá meira