Vill slíta samstarfi við AGS ef sjóðurinn stendur sig ekki Heimir Már Pétursson skrifar 2. október 2009 19:23
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Íslendingar eigi að segja upp samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn geti sjóðurinn ekki staðið við stuðning sinn við Íslendinga. Ríkisstjórnin ætti að íhuga stöðu sína þegar tveir stjórnarþingmenn vilji ekki vera í ríkisstjórn vegna Icesave. Fulltrúar stjórnarandstöðunnar funduðu með formönnum stjórnarflokkanna um stöðuna í Icesave málinu í morgun að ósk Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann sagði að fundi loknum að augljóst væri að ekki samningaviðræður stæðu enn yfir við Breta og Hollendinga og því ekki komin niðurstað í málið. Mikilvægt væri að ríkisstjórnin áttaði sig á því að hún væri bundin af samþykktum Alþingis. „Það var ágætis andi á þessum fundi. Það fóru fram mjög hreinskiptar viðræður. Ég ætla ekki að gera lítið úr þeim vanda sem ríkisstjórnin er í við þessar aðstæður," sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, að loknum fundi. „En mín skoðun er sú að það geti tekist betri samstaða um það að standa fast á sínu í þessu máli og síðan í framhaldinu taka mögulegum afleiðingum af því, heldur en að ná samstöðu um fullkomna uppgjöf," segir Bjarni. Bjarni útilokar ekki að Íslendingar segi samkomulaginu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn upp. „Ef Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn er einhvers konar fyrirbæri sem er allt annars eðlis en hann gefur sig út fyrir að vera, höfum við ekkert í samstarfi við hann að gera," segir Bjarni.
Tengdar fréttir Vill samstöðu um kröfu á sanngjarnri málsmeðferð „Þetta var ágætur fundur. Hann var mjög málefnalegur og þetta voru ágætis skoðanaskipti sem áttu sér stað á þessum fundi," sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, eftir fund í Stjórnarráðinu í dag. Hann, ásamt fulltrúum Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar, funduðu með leiðtogum ríkisstjórnarinnar í dag. 2. október 2009 10:34 Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Innlent Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Innlent Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Fyrstu þreifingar áramótaveðurspár Veður Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Fær íshellaferð ekki endurgreidda Innlent Rússar opna leikhúsið í Maríupól á ný Erlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Fleiri fréttir Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Tap upp á 130 milljónir og neikvætt eigið fé upp á aðrar 26 Fær íshellaferð ekki endurgreidda Umferðin róleg í kirkjugörðunum Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sjá meira
Vill samstöðu um kröfu á sanngjarnri málsmeðferð „Þetta var ágætur fundur. Hann var mjög málefnalegur og þetta voru ágætis skoðanaskipti sem áttu sér stað á þessum fundi," sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, eftir fund í Stjórnarráðinu í dag. Hann, ásamt fulltrúum Framsóknarflokksins og Hreyfingarinnar, funduðu með leiðtogum ríkisstjórnarinnar í dag. 2. október 2009 10:34