Forseti Afganistans einn í framboði 2. nóvember 2009 06:00 á fundinum Abdullah tilkynnti um ákvörðun sína á fundi með fréttamönnum í gærmorgun. Hann hélt tilfinningaþrungna ræðu þar sem hann ræddi kosningasvik og sagði ákvörðunina hafa verið mjög erfiða. fréttablaðið/ap
Seinni umferð forsetakosninga mun fara fram í Afganistan um næstu helgi þrátt fyrir að forsetinn, Hamid Karzai, sé einn í framboði. Keppinautur hans, Abdullah Abdullah, dró framboð sitt formlega til baka í gær. Abdullah segir að kosningarnar verði ekki heiðarlegar. Kröfum hans um aðgerðir til að koma í veg fyrir kosningasvindl hafi ekki verið mætt, en hann hafði krafist þess að forsetinn skipti út fulltrúum í kosningastjórn en það var ekki gert. Eftir fyrri umferð kosninganna var þriðjungur atkvæða Karzai ógildur af kosningaeftirlitsmönnum vegna svindls. Abdullah segir það hag þjóðarinnar að hann dragi framboðið til baka. Hann sagðist í samtali við fréttamenn ekki ætla að hvetja fólk til að sniðganga kosningarnar, stuðningsmenn hans ættu að gera það upp við sig sjálfir hvort þeir kjósi eða ekki. Hann hvatti fólk þó til þess að mótmæla ekki. Sendiherra Bandaríkjanna í landinu hafði fundað stíft með forsetaframbjóðendunum tveimur langt fram á nótt á laugardag með það í huga að mynda samsteypustjórn þar sem þeir myndu deila völdum. Þar krafðist Abdullah þess að þrír meðlimir kosningastjórnarinnar yrðu látnir fara ásamt þremur ráðherrum. Þá vildi hann að breytingar yrðu gerðar á stjórnarskránni svo hann hefði áhrif á val á ráðherrum og aðrar stórar ákvarðanir, samkvæmt heimildum AP-fréttastofunnar. Karzai hafnaði þessu öllu snemma á sunnudagsmorgun. Það að Abdullah hafi ekki hvatt fólk til að sniðganga kosningarnar er talið benda til þess að hann sé tilbúinn til frekari viðræðna, sé forsetinn tilbúinn til þess. Málið hefur komið sér illa fyrir Bandaríkjastjórn, sem reynir að ákveða hvort senda skuli tugi þúsunda hermanna til viðbótar til Afganistans. Hún telur að samsteypustjórn og samvinna sé besta leiðin til þess að ná árangri í stríðinu gegn talibönum. Ágreiningur um kosningarnar hafi sundrað þjóðinni, sem ætti að standa saman. Átökin hafa harðnað og í októbermánuði létust að minnsta kosti 57 bandarískir hermenn. Stjórnin hafði ætlað að bíða eftir úrslitum kosninganna til að tilkynna ákvörðun sína. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Sjá meira