Washington Redskins þurfa ekki að breyta um nafn Atli Steinn Guðmundsson skrifar 17. nóvember 2009 07:19 Lukkudýr Redskins (til hægri) ásamt lukkudýri Dallas Cowboys á leik árið 2005.
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur komist að þeirri niðurstöðu að krafa sjö indíána um að ruðningsliðið Washington Redskins breyti um nafn komi of seint fram. Indíánarnir kröfðust nafnabreytingar ruðningsliðsins með þeim rökum að heitið Washington Redskins fæli í sér aðdróttun að kynþætti þeirra. Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði að taka málið til umfjöllunar og féllst þar með á þann dóm áfrýjunardómstóls í Washington að krafa hinna innfæddu hefði komið allt of seint fyrir dómstóla, löngu eftir að liðinu var gefið nafn. Þar með lýkur væntanlega að einhverju eða öllu leyti áratugalangri baráttu ýmissa samtaka amerískra indíána gegn því að nöfn indíánaættbálka séu notuð sem heiti á íþróttalið landsins svo og vísanir í litarhátt indíána, svo sem með heitinu redskins eða rauðskinnar. Talsmenn Washington Redskins hafna því alfarið að heiti liðsins sé á nokkurn hátt niðrandi í garð indíána enda væri það skelfilegt ef liðinu væri gert að breyta um nafn nú eftir alla þá fjármuni sem varið hefur verið til gerðar ýmiss konar varnings, svo sem fata og drykkjarmála, sem árituð eru nafninu. Redskins-nafnið er upphaflega komið frá Boston og er saga þess rakin aftur til ársins 1933. Þá var þar starfrækt liðið Boston Braves en eigandi þess breytti nafninu í Boston Redskins til heiðurs yfirþjálfaranum William „Lone Star" Dietz sem var indíáni. Ekki fylgdi sögunni hvort honum hefði mislíkað nafngiftin nokkuð.
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira