Kosningar haldnar í janúar 9. nóvember 2009 04:30 Íraskir þingmenn Firyad Rawanduzi og Khaled Shwani ræða við fjölmiðla. nordicphotos/AFP
Íraska þingið samþykkti í gær nýja kosningalöggjöf, sem ætti að geta tryggt að fyrirhugaðar þingkosningar þar verði haldnar í janúar. Óttast var að kosningunum þyrfti að fresta ef þingið kæmi sér ekki saman um kosningalög, sem hafa verið umdeild á þinginu mánuðum saman. Mikil spenna ríkti á þinginu í gær meðan afgreiðsla laganna stóð yfir. Bein sjónvarpsútsending var frá þingfundinum og sjá mátti Christopher Hill, sendiherra Bandaríkjanna, á þönum milli þingflokka til að miðla málum og þrýsta á að lögin yrðu samþykkt. Flóknasta deilumálið snerist um hvernig skiptingu þingsæta frá Kirkuk, olíuríkri borg í norðanverðu landinu, skyldi háttað. Þar búa bæði kúrdar og arabar, en kúrdar telja borgina tilheyra sér og vilja að hún sé hluti af sjálfstjórnarsvæði kúrda í norðanverðu landinu. Arabarnir vilja hins vegar engan veginn missa yfirráð sín yfir borginni, sem þeim voru fengin meðan Saddam Hussein var við völd. Saddam lét flytja tugi þúsunda kúrda nauðuga burt frá borginni til þess að arabar yrðu meirihluti íbúanna. Kosningar í landinu eru fyrirhugaðar seinni partinn í janúar. - gb
Mest lesið Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Samtökin séu ekki í baráttu gegn einkabílnum Innlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Innlent Sjálfstæðisflokkurinn tapar fylgi Innlent Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Innlent Fleiri fréttir Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Sjá meira