Þrílitu bindin seldust upp 2. september 2009 13:27 Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri hjá Krabbameinsfélaginu, Valtýr Helgi Diego og Vilhjálmur Svan, verslunarstjóri Herragarðsins í Kringlunni.
Krabbameinsfélag Íslands stóð í annað sinn fyrir átakinu „Karlmenn og krabbamein" í mars. Átakið vakti mikla athygli en því var ætlað að vekja karlmenn til vitundar um krabbamein og þátt heilbrigðs lífsstíls í forvörnum gegn þessum erfiða sjúkdómi. Þrílit bindi sem seld voru til styrktar átaksins í verslunum Herragarðsins eru nú uppseld. Ágóðinn af sölunni var ríflega 1,2 milljónir króna en alls seldust 279 bindi. Litirnir þrír, blár, hvítur og fjólublár, tákna þrjú algengustu krabbamein hjá körlum; blöðruhálskirtils-, lungna- og ristilkrabbamein. „Við erum stoltir af að styðja við átak á borð við þetta, en mikið hefur skort á umræðu um karla og krabbamein," segir Hákon Hákonarson hjá Herragarðinum. „Salan gekk mjög vel og bindin seldust upp hér í verslun okkar í Kringlunni." „Rannsóknir sýna að hægt er að koma í veg fyrir allt að eitt af hverjum þremur krabbameinstilfellum með því að borða hollari mat, stunda líkamsrækt, stilla drykkju og sólböðum í hóf og halda sig frá reykingum," segir Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri hjá Krabbameinsfélaginu. „Batahorfur þeirra sem greinast með krabbamein hér á landi eru almennt góðar en brýnt er að greina meinin snemma, og því skiptir máli að karlar séu meðvitaðir um krabbamein og einkenni þeirra. Með þrílita bindinu gefst okkur færi á að sýna samstöðu og vekja aðra menn til meðvitundar um krabbamein," segir Gústaf og bætir við að vonir standi til að gera samstarfið við Herragarðinn að árlegum viðburði.
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Fleiri fréttir Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Sjá meira