Efnahagsbrotadeild skoðar styrki til stjórnmálaflokka 2. september 2009 06:15 Allir gömlu flokkarnir tóku við styrkjum frá Íslandspósti, þótt það væri brot á þá nýsettum lögum um fjármál
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra rannsakar styrkveitingar fyrirtækja í opinberri eigu til stjórnmálaflokka fyrir kosningarnar 2007. Helgi Magnús Gunnarsson saksóknari staðfestir þetta, en vill ekki ræða rannsóknina frekar. Samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálasamtaka er flokkum óheimilt að taka við styrkjum frá opinberum aðilum. Rannsóknin snýst því um hugsanlegt lögbrot flokkanna, en ekki fyrirtækjanna. Ríkisendurskoðun birti í mars útdrætti úr ársreikningum flokkanna fyrir árið 2007. Þar kom fram að fyrirtæki í meirihlutaeigu ríkisins, Neyðarlínan, Íslandspóstur og Orkubú Vestfjarða, hefðu styrkt fjóra stjórnmálaflokka. Neyðarlínan veitti Sjálfstæðisflokknum hámarksstyrkveitingu, þrjú hundruð þúsund krónur, en styrkti ekki aðra flokka. Sjálfstæðisflokkurinn skilaði síðar styrknum og framkvæmdastjóri flokksins, Andri Óttarsson, harmaði mistökin. Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, var áður aðstoðarmaður Þorsteins Pálssonar, sem þá var ráðherra fyrir Sjálfstæðisflokkinn, og síðar ritstjóri Fréttablaðsins. Þá upplýsti Ríkisendurskoðun einnig að Íslandspóstur hefði styrkt Framsókn, Samfylkingu, Sjálfstæðisflokk og VG um 150.000 krónur hvern flokk. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, var áður bæjarstjóri í Garðabæ og formaður Samtaka atvinnulífsins. Flokkarnir lýstu því allir yfir í kjölfarið að þeir ætluðu að endurgreiða Íslandspósti. Orkubú Vestfjarða styrkti Sjálfstæðisflokkinn um 40.000 krónur fyrir kosningarnar en ekki aðra flokka. Kristján Haraldsson er orkubússtjóri Orkubús Vestfjarða. Sá sem brýtur lög um fjármál stjórnmálasamtaka, hvort sem er af ásetningi eða stórfelldu gáleysi, skal sæta fésektum. Alvarleg brot geta þó varðað allt að sex ára fangelsi. Framkvæmdastjórar flokkanna eru líklegastir til að þurfa að svara fyrir móttöku styrkjanna. klemens@frettabladid.is Helgi Magnús Gunnarsson
Mest lesið Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent „Andlitið á honum var skakkt“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Bílasali gerður að prinsi eftir faðernispróf Erlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. Innlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Fleiri fréttir Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Bæta umferðaröryggi við gatnamót Miklubrautar og Grensásvegar „Andlitið á honum var skakkt“ Ari orðinn stjórnarformaður Rafleiðni aukist skarpt í Múlakvísl Ákærði hafði afskipti af vitnisburði í gegnum fjarfundarbúnað Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar Kjartan Hreinn aftur aðstoðarmaður Ölmu Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgarfulltrúar meira Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst? Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sjá meira