Mömmu Ágústar úthýst af YouTube Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. september 2009 10:54 Leikkonan leitar barnsföður síns með hjálp YouTube.
YouTube myndskeið, þar sem ung dönsk kona auglýsir eftir barnsföður sínum, hefur vakið mikla eftirtekt í Danmörku að undanförnu. Nú hefur danska ferðamálastofan, VisitDenmark, fjarlægt myndskeiðið af YouTube til að bregðast við gagnrýni. Í myndskeiðinu segist konan, sem er í raun leikkona, hafa hitt manninn þegar hún var að skemmta sér. Þau hafi sofið saman um nóttina heima hjá henni en hann svo verið farinn þegar hún vaknaði daginn eftir. Hún muni hvorki nafnið hans né hvaðan hann er. Hins vegar sé ávöxtur skammvinnra kynna þeirra barn sem hún hefur nefnt Ágúst. Hún telji rétt að barnsfaðirinn viti af syni sínum og hafi því ákveðið að nýta sér upplýsingatæknina til að leita hans. Það sem áhorfendum er ekki ljóst þegar þeir horfa á YouTube myndskeiðið er að konan er leikkona og að um upplogna sögu er að ræða. „Mér þykir mjög leitt ef myndin hefur stuðað marga, því það var ekki ætlunin. Hugmyndin var að búa til jákvæða ímynd af Danmörku og skapa umræðu um Danmörk. Við höfum nú fjarlægt myndskeiði af YouTube til þess að stuða ekki fólk," segir Dorte Kiilerich, framkvæmdastjóri hjá VisitDenmark. „VisitDenmark hefur það hlutverk að markaðssetja Danmörku í útlöndum og það þarf auðvitað að finna sífellt fleiri leiðir til þess. Þegar þetta er gert þarf maður að vera skýr í sinni framsetningu því annars er hætta á að hið gagnstæða gerist. Og það má segja að það hafi gerst hér," segir Georg Sørensen, stjórnarformaður hjá VisitDenmark, í samtali við dönsku fréttastofuna DR. Því hafi myndskeiðið verið tekið út. Myndskeiðið er þó ekki alveg horfið af YouTube þrátt fyrir að VisitDenmark hafi fjarlægt það. Einn YouTube notandi sem kallar sig Findize hefur nefnilega hlaðið myndskeiðinu þangað aftur.
Mest lesið „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Erlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Erlent Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Innlent Fleiri fréttir Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Sjá meira