Auka á hlut kvenna í sveitarstjórnum 2. apríl 2009 10:35 Ásta R. Jóhannesdóttir félags- og tryggingarmálaráðherra.
Alþingi hefur ályktað að Ásta R. Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, feli Jafnréttisstofu að hrinda af stað aðgerðum til að efla hlut kvenna í sveitarstjórnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu. Þar segir ennfremur að hlutur kvenna í sveitarstjórnum hafi aukist mjög hægt þrátt fyrir meiri umræðu um mikilvægi þess að fjölga konum í stjórnmálum á undanförnum árum. „Hlutur kvenna í sveitarstjórnum hefur aukist mjög hægt þrátt fyrir meiri umræðu um mikilvægi þess að fjölga konum í stjórnmálum á undanförnum árum. Konur voru þannig eingöngu um tæp 36% allra sveitarstjórnarmanna á landinu eftir síðustu sveitarstjórnarkosningar 2006. Hlutfall kvenna í nefndum, ráðum og stjórnum sveitarstjórnarmanna var svipað." Þá segir að konur séu í meirihluta í sveitarstjórnum í tíu sveitarfélögum á landinu en í sjö sveitarfélögum sé engin kona meðal sveitastjórnarmanna. Einungis fjórðungur oddvita sveitastjórna er konur. Félags- og tryggingamálaráðherra sem jafnframt er ráðherra jafnréttismála segir mjög mikilvægt að fjölga konum í sveitarstjórnum því „jafnræði milli kynja í stjórnmálum eykur líkurnar á því að hagsmunir heildarinnar séu hafðir að leiðarljósi þegar ákvarðanir eru teknar." „Jafnréttisstofa býr yfir mikilli þekkingu á stöðu kvenna í samfélaginu og er því vel til þess fallin að annast aðgerðir til auka hlut kvenna í sveitarstjórnum. Verður meðal annars lögð áhersla á samstarf við samgönguráðuneyti sem fer með málefni sveitarstjórna, Samband íslenskra sveitarfélaga sem og stjórnmálaflokkana sem bjóða fram til sveitarstjórna." Sveitarstjórnarkosningar verða næst haldnar vorið 2010.
Mest lesið Töpuðu tæpum hundrað milljónum Innlent Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Seinfeld og Friends-leikari látinn Lífið Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Yfir hundrað handteknir grunaðir um að skipuleggja árásir á gamlársdag Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Gefur lítið fyrir staðhæfingar um nýfallið hitamet Veður Fleiri fréttir Töpuðu tæpum hundrað milljónum Milljónir í sekt fyrir að bakka á konu Þörf á að skerpa á verklagi spítalans í heimilisofbeldismálum Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Sjá meira