Innlent

Samræmd úrræði í greiðsluerfiðleikum

Samkomulag um samræmd úrræði vegna fasteignaveðlána var undirritað af ráðherrunum Ástu R. Jóhannesdóttur, Gylfa Magnússyni, Guðmundi Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, Jónu Björk Guðnadóttur frá Samtökum fjármálafyrirtækja, Hrafni Magnússyni, framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða, og Hlyni Jónssyni, formanni skilanefndar SPRON.Fréttblaðið/pjetur
Samkomulag um samræmd úrræði vegna fasteignaveðlána var undirritað af ráðherrunum Ástu R. Jóhannesdóttur, Gylfa Magnússyni, Guðmundi Bjarnasyni, framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, Jónu Björk Guðnadóttur frá Samtökum fjármálafyrirtækja, Hrafni Magnússyni, framkvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða, og Hlyni Jónssyni, formanni skilanefndar SPRON.Fréttblaðið/pjetur

Hætt hefur verið við að koma fasteignaveðlánum hjá bönkum og lífeyrissjóðum í skjól hjá Íbúðalánasjóði eins og rætt var um í vetur. Í staðinn er búið að samræma úrræði fyrir einstaklinga og heimili í greiðsluerfiðleikum vegna fasteignaveðlána. Nú á að vera tryggt að allir lántakendur fasteignaveðlána njóti sambærilegra úrræða vegna greiðsluerfiðleika og Íbúðalánasjóður veitir.

Sex úrræði verða nú virk fyrir þá sem eiga í greiðsluerfiðleikum vegna fasteignaveðlána hjá bönkum og lífeyrissjóðum. Þetta fólk getur samið um dreifingu á vanskilum í allt að einu og hálfu ári, tekið verður aukið tillit til aðstæðna við rýmingu í kjölfar nauðungarsölu og veittur rýmingarfrestur allt að þremur mánuðum frá söludegi. Með frystingu greiðslna vegna sölutregðu verður komið til móts við þá sem hafa keypt fasteign en ekki getað selt fyrri eign, með skuldbreytingu vanskila verður hægt að bæta vanskilum við höfuðstól eða með því að gefa út nýtt skuldabréf. Þá getur lántakandi fengið frest á greiðslum í allt að eitt ár í senn með möguleika á framlengingu í allt að þremur árum auk þess sem mögulegt verður að lengja lánstíma.

Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir að brýnt sé að taka á vanda heimilanna og telur að þessi samræmdu úrræði séu gott og ábyrgt skref í þá átt. Þetta skref stefni ekki stöðugleika eða afkomu lánastofnana í hættu.

„Þótt ég sé almennt ekki hlynntur samráði fyrirtækja get ég ekki annað en verið hlynntur þessu samkomulagi,“ segir hann og telur líklegt að samkeppnis­yfirvöld samþykki þetta „óvenjulega skref. Ég get ekki ímyndað mér annað,“ segir hann.

Samkomulag um samræmd úrræði var undirritað í gær. Gylfi segir að það nái ekki til myntkörfu­lána. „Unnið er að hliðstæðu samkomulagi sem tekur á vanda þeirra sem eru með myntkörfulán. Það hefði verið gott að geta undirritað það í dag en ég á von á að það geti orðið á næstu dögum.“

Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir að samkomulagið komi ekki í veg fyrir að Íbúðalánasjóður kaupi skuldabréf af bönkum, sparisjóðum eða lífeyrissjóðum ef áhugi er fyrir hendi. Sjóðurinn hafi til að mynda nýlega keypt bréf af Sparisjóður Keflavíkur. Sá möguleiki haldist opinn áfram.ghs@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×