Innlent

Karl V. Matthíasson í Frjálslynda flokkinn

Karl V. Matthíasson.
Karl V. Matthíasson.

Karl V. Matthíasson, sem hingað til hefur gegnt þingmennsku fyrir Samfylkinguna, hefur gengið til liðs við Frjálslynda flokkinn. Karl bauð sig fram í annað sæti á lista Samfylkingar í Norðvesturkjördæmi en hafnaði í fimmta sæti í prófkjöri á dögunum. Vegna kynjakvóta færðist Karl reyndar upp í fjórða sæti listans en hann ákvað samt sem áður að yfirgefa flokkinn og ganga til liðs við frjálslynda.

„Ákvörðun þessi helgast af því að skoðanir mínar og hugsjónir um sjávarútvegsmál á Íslandi eiga ríkan hljómgrunn í Frjálslynda flokknum," segir Karl í yfirlýsingu sem hann sendi út vegna tíðindanna. „Viðhorf mín á þessu sviði hafa ekki skipað þann sess innan Samfylkingarinnar sem ég hefði kosið á undanförnum tveimur árum, sem kom vel í ljós í niðurstöðum prófkjörs Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir skömmu. "

Karl segir eina meginástæðu þess að hann hóf þáttöku í stjórnmálum hafi verið löngun sín til þess að stuðla að breytingum á fiskveiðistjórnunarkerfi landsins sem að hans mati er með eindæmum ranglátt og felur í sér mikla mismunun. „Það hefur ekki síst komið í ljós eftir að efnahagskreppan skall á Íslandi í október á síðasta ári en ég er þeirrar skoðunar að fyrirkomulag þessa kerfis eigi stóran þátt í þeim vanda sem þjóðin glímir nú við. Því verður eitt mikilvægasta verkefni í endurreisn landsins að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu á þann veg að arður þessarar dýrmætustu náttúruauðlindar landsins komi þjóðinni allri til góða. og skapi um leið fleiri atvinnutækifæri."

Karl bendir á að Frjálslyndi flokkurinn hafi ávallt sett þessi mál í öndvegi. „Ég hef því ákveðið að ganga til liðs við flokkinn og hlakka ég til að eiga gott samstarf við félaga hans," segir Karl að lokum um leið og hann þakkar kærum vinum sínum í Samfylkingunni samstarfið á undanförnum árum og óskar þeim alls hins besta.






















Fleiri fréttir

Sjá meira


×