Innlent

Býst við viðbrögðum frá Bretum og Hollendingum í vikunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Steingrímur segir að Íslendingar verði í vonum málum ef fyrirvörunum verði hafnað. Mynd/ Vilhelm.
Steingrímur segir að Íslendingar verði í vonum málum ef fyrirvörunum verði hafnað. Mynd/ Vilhelm.
Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra vonast til þess að það skýrist í vikunni hver viðbrögð Breta og Hollendinga verða við fyrirvörum Alþingis á Icesave samkomulaginu. Hann sagði á Sprengjusandi á Bylgjunni í morgun að umræðan í Bretlandi hafi verið róleg en neikvæðari í Hollandi. Það sé í takti við það sem menn hafi búist við.

Steingrímur segir að Íslendingar yrðu í mjög erfiðri stöðu ef Bretar og Hollendingar höfnuðu fyrirvörunum. Hann vonist til þess að ef fyrirvararnir mættu andstöðu myndu viðsemjendur frekar vilja setjast niður og skoða málin betur en að hafna málinu alveg.

Þá segir Steingrímur að allar forsendur séu fyrir því að krónan fari að styrkjast, meðal annars sú grundvallarforsenda að tekjuafgangur er á viðskiptum við útlönd. Vextir fari svo að lækka þegar krónan styrkist.

Þá segir Steingrímur óhjákvæmilegt að hækka skatta um næstu áramót. Það sé tálsýn að halda því fram að hægt sé að takast á við vandann í ríkisfjármálum án þess að til slíkra aðgerða komi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×