Fá hvorki jólagjöf né veitingahúsaferð 26. nóvember 2009 03:00 Enginn pakki í ár „Hafi slíkt tíðkast áður ber að láta af þeim sið,“ segir um jólagjafir til starfsmanna og boð í jólahlaðborð á veitingastöðum í bréfi til yfirmanna hjá Reykjavíkurborg. Fréttablaðið/Anton „
Að gefnu tilefni skal á það minnt að stjórnendum vinnustaða Reykjavíkurborgar er óheimilt að verja fjármunum vinnustaða til að bjóða starfsmönnum á jólahlaðborð veitingastaða eða til að kaupa jólagjafir. Hafi slíkt tíðkast áður, ber að láta af þeim sið,“ segir í bréfi til sviðsstjóra og starfsmannastjóra hjá Reykjavíkurborg. Í bréfinu, sem Hallur Páll Jónsson mannauðsstjóri sendi fyrr í þessum mánuði, kemur fram að starfsstaðir Reykjavíkurborgar hafi haft ýmsan hátt á varðandi skipulag atburða með starfsmönnum í tilefni aðventunnar. „Á öllum vinnustöðum gera menn sér dagamun og þannig verður það án efa að þessu sinni, enda mikilvægt að efla starfsandann,“ ítrekar mannauðsstjórinn um leið og hann undirstrikar að nauðsynlegt sé að útgjöld í tilefni aðventunnar verði í miklu hófi. „Hér er ekki aðeins verið að vísa til sparnaðar og ráðdeildar eða að vel sé farið með skattfé borgarinnar, heldur einnig bent á mikilvægi þess að sömu meginviðmið gildi um starfsmenn í þessum efnum, óháð vinnustað og fagsviði.“ Í svari til Fréttablaðsins segir Hallur að borgin hafi ekki gefið út sérstakar leiðbeiningar fyrir stjórnendur. „Hins vegar hefur þeim tilmælum verið beint til stjórnenda að gæta þess að útgjöld verði í hófi,“ segir mannauðsstjórinn. - gar
Mest lesið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Innlent „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Innlent Selfoss stöðvaður í Bretlandi Innlent Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Innlent Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Erlent Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Innlent Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Erlent Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Fleiri fréttir Magnús Þór sjálfkjörinn Fimm ára dómur fyrir hnífaárás á fjölskylduföður Telur hagræðingaráformin þau metnaðarfyllstu Nauðsyn að skýra betur hvort eða hvenær læknar megi rjúfa þagnarskyldu Selfyssingar í 60 plús heilsueflingu klárir í jólin Skoða að koma á ferjusamgöngum milli Skotlands og Seyðisfjarðar Viðreisn gæti reynst í lykilstöðu milli blokkanna Barnavernd fylgist með fleiri ófrískum konum í neyslu en síðustu ár Fleiri óléttar konur í neyslu á borði barnaverndar og spennandi kosningar framundan Langvarandi einangrun ungrar konu gagnrýnd af Amnesty Selfoss stöðvaður í Bretlandi Þrettán nýir rafknúnir strætisvagnar teknir í notkun Zuism tekið af trúfélagaská eftir áralöng svik og pretti Mun áfram leiða lista Framsóknar í Múlaþingi Töpuðu 133 milljónum króna á kosningaári Reyndu að koma útlendingafrumvarpi að á síðustu stundu Súlunesmálið: Skoða þurfi lög er varða þagnarskyldu Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Spurningum Sigmundar Ernis svarað og málið ekki aftur í nefnd Þingstörfin á lokametrunum og styttist í jólafrí Naustin án bíla og eins og „löber“ með íslensku prjónamynstri Taka enn tuttugu þúsund króna beygju Ekið á kyrrstæðan bíl á Suðurstrandarvegi „Ellibætur“ frá ríkinu eigi að heyra sögunni til Áttu að taka tillit til þess að talsmaðurinn klikkaði Guðrún vinsælli en Agnes og traust til kirkjunnar á uppleið Glæpir eiga ekki að borga sig: Gæti hagnast fjárhagslega á að hafa banað föður sínum Björg býður ungliðum til fundar Verði húsið rifið verði fyrst að óska þess að friðun verði afnumin Staðin að því að stinga inn á sig snyrtivörum Sjá meira