Skyldmenni mannsins ekki smituð 25. maí 2009 10:50 MYND/GVA
Niðurstöður úr alls sex sýnum, sem tekin voru til rannsóknar síðastliðinn föstudag og laugardag frá einstaklingum sem grunur lék á að hefði smitast af inflúensu A (H1N1), sýna að þeir eru ekki sýktir af hinni nýju inflúensu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sóttvarnarlækni og Almannavarnanefnd. Um var að ræða einstaklinga sem allir tengjast manninum sem greindist með inflúensuna fyrir helgi, fjölskylduböndum, en óttast var að þeir hefðu smitast. „Fylgst verður áfram með heilsufari sexmenninganna næstu daga og tekin ný sýni til rannsóknar ef vart verður inflúensulíkra einkenna hjá einhverjum þeirra. Ekki er ástæða til að gera aðrar ráðstafanir," segir ennfremur. Heilbrigðisyfirvöld leggja áherslu á að læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn verði áfram vakandi fyrir því að taka sýni úr sjúklingum með inflúensulík einkenni og senda til greiningar á veirufræðideild Landspítala. Áfram er í gildi hættustig hér á landi samkvæmt viðbragðsáætlun um inflúensufaraldur. Tilkynningar um viðbúnað vegna inflúensunnar eru birtar á influensa.is, bæði á íslensku og ensku, og á almannavarnir.is. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi. Þá segir í tilkynningunni að viðbúnaðaráætlun og tilheyrandi ráðstafanir vegna farsótta séu á dagskrá sameiginlegs fundar sóttvarnalækna og lögreglustjóra á landinu öllu í Reykjavík eftir hádegi í dag. Til þessa fundar var boðað áður en inflúensa A (H1N1) var staðfest hérlendis. 12.500 tilfelli staðfest í heiminumÚtbreiðsla inflúensu A þann 25. maí.„Samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB voru staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) í heiminum í morgun alls 12.501 í 46 ríkjum (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti). Langflest flensutilfellanna eru í Bandaríkjunum eða 6.552 en þar eru líka meðtalin líkleg tilvik þar í landi," segir einnig í tilkynningunni.„Staðfest dauðsföll vegna inflúensunnar eru nú 91 talsins, langflest í Mexíkó eða 80. Níu dauðsföll eru staðfest í Bandaríkjunum, eitt í Kanada og eitt í Kosta Ríka. Flestir þessara einstaklinga voru með undirliggjandi sjúkdóma sem geta gert sýkingar af völdum inflúensu alvarlegri en ella."
Tengdar fréttir Sá smitaði var að koma frá New York Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segir að maðurinn sem smitaður er af H1N1, Svínaflensu, hafi verið að koma frá New York fyrir helgi en gert er ráð fyrir hann hafi smitast þar og óttast er að fjölskylda hans sé einnig smituð. Hann segir heilbrigðisyfirvöld hér á landi ekki bregðast hart við þessum fréttum en leggja til að viðkomandi haldi sig heima. 23. maí 2009 12:12 Grunur um tvö svínaflensutilfelli í viðbót Gert er ráð fyrir að niðurstöður rannsókna á sýnum vegna gruns um sex tilfelli inflúensu A (H1N1) liggi fyrir á morgun, mánudag. Viðkomandi einstaklingar tilheyra fjölskyldu mannsins sem greindist með inflúensuna fyrir helgi. Enginn viðkomandi er alvarlega veikur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni nú í dag. Það hafa því tvö tilfelli bæst við en í gær lék grunur á að fjórir fjölskyldumeðlimir mannsins hefðu smitast. 24. maí 2009 11:35 Býst við fleiri svínaflensutilfellum hér á landi Fyrsta tilfelli H1N1-flensu, svokallaðri svínaflensu, hefur verið staðfest hér á landi. Sóttvarnalæknir gerir fastlega ráð fyrir að fjöldi Íslendinga greinist með flensuna á næstu vikum og mánuðum. Smitið barst hingað frá Bandaríkjunum og beðið er niðurstöðu rannsókna á fjórum einstaklingum til vibótar. 23. maí 2009 18:30 Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Innlent Fleiri fréttir Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Sjá meira
Sá smitaði var að koma frá New York Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segir að maðurinn sem smitaður er af H1N1, Svínaflensu, hafi verið að koma frá New York fyrir helgi en gert er ráð fyrir hann hafi smitast þar og óttast er að fjölskylda hans sé einnig smituð. Hann segir heilbrigðisyfirvöld hér á landi ekki bregðast hart við þessum fréttum en leggja til að viðkomandi haldi sig heima. 23. maí 2009 12:12
Grunur um tvö svínaflensutilfelli í viðbót Gert er ráð fyrir að niðurstöður rannsókna á sýnum vegna gruns um sex tilfelli inflúensu A (H1N1) liggi fyrir á morgun, mánudag. Viðkomandi einstaklingar tilheyra fjölskyldu mannsins sem greindist með inflúensuna fyrir helgi. Enginn viðkomandi er alvarlega veikur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni nú í dag. Það hafa því tvö tilfelli bæst við en í gær lék grunur á að fjórir fjölskyldumeðlimir mannsins hefðu smitast. 24. maí 2009 11:35
Býst við fleiri svínaflensutilfellum hér á landi Fyrsta tilfelli H1N1-flensu, svokallaðri svínaflensu, hefur verið staðfest hér á landi. Sóttvarnalæknir gerir fastlega ráð fyrir að fjöldi Íslendinga greinist með flensuna á næstu vikum og mánuðum. Smitið barst hingað frá Bandaríkjunum og beðið er niðurstöðu rannsókna á fjórum einstaklingum til vibótar. 23. maí 2009 18:30