Innlent

Tvær kannabisverksmiðjur stöðvaðar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktanir í tveimur húsum í miðborginni eftir hádegi í gær.

Á öðrum staðnum fundust einnig ýmsir munir sem grunur leikur á að séu þýfi. Karl á fertugsaldri var handtekinn í þágu rannsóknarinnar.

Á hinum staðnum var jafnframt lagt hald á amfetamín og marijúana en karl á þrítugsaldri var yfirheyrður vegna málsins.

Síðdegis handtók lögreglan liðlega fimmtugan mann í austurborginni en sá var með fíkniefni í fórum sínum. Í framhaldinu var framkvæmd húsleit í sama hverfi hjá karli á svipuðum aldri en hjá honum fannst nokkuð af fíkniefnum, bæði amfetamín og marijúana. Hann var sömuleiðis handtekinn.

Nokkru síðar hafði lögreglan afskipti af manni á sextugsaldri en sá var stöðvaður á Laugavegi og reyndist vera með amfetamín meðferðis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×