Safnað fyrir innanlandsaðstoð 16. mars 2009 04:30 Ef allir landsmenn leggja sitt af mörkum munu um 32 milljónir króna safnast og renna í beina aðstoð innanlands. „
Okkar markmið er að hvert mannsbarn á Íslandi gefi 100 krónur," segir Vilborg Oddsdóttir hjá Hjálparstarfi kirkjunnar um landssöfnun sem hefst í dag í samstarfi við Rauða kross Íslands. Vilborg segir söfnunina vera tilkomna vegna aukinnar þarfar á aðstoð innanlands í kjölfar breyttra aðstæðna í landinu og er miðað við að safna 32 milljónum króna ef allir landsmenn taka þátt. „Frá og með deginum í dag getur fólk hringt í númerið 9015100. Þá renna 100 krónur óskiptar í söfnunina, en símafélögin gefa sína þjónustu. Við höfum fundið í gegnum tíðina að þeir sem standa höllum fæti og hafa ekki mikið fjármagn vilja samt vera með svo með því að hafa þetta 100 krónur geta allir lagt sitt af mörkum. Við ljúkum svo söfnuninni í Kastljósi á föstudagskvöldið þar sem við förum yfir ástandið eins og það er í dag, en tölum einnig um hvað fólk getur gert til að byggja sig upp," útskýrir Vilborg. „Afrakstrinum verður skipt jafnt milli Hjálparstarfs kirkjunnar og Rauða krossins og nýttur í beina aðstoð við fólk úti um allt land, bæði fyrir mat og aðra almenna aðstoð. Við erum að undirbúa okkur fyrir næsta vetur og horfa á hvað við getum gert til að mæta fjölskyldum í landinu sem eru ekki í sömu sporum og þær voru ef til vill fyrir hálfu ári síðan," segir Vilborg. -ag
Mest lesið Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Fleiri fréttir Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Sjá meira