Innlent

Innbrotsþjófar enn á ferð

Brotist var inn í tvo sumarbústaði í landi Klausturhóla í Grímsnesi í nótt og þaðan stolið sjónvörpum og raftækjum. Í báðum tilvikum spenntu þjófarnir upp glugga og komust þannig inn. Ekki voru unnar skemmdir innanstokks, en þjófarnir komust undan. Eins og við greindum frá fyrir helgi var tilkynnt um innbrot í 12 sumarbústaði í uppsveitum Árnessýslu í síðustu viku og leikur grunur á að sömu þjófanrir hafi verið á ferð í nokkrum tilvikanna og jafnvel í nótt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×