Engin búinn að kæra hjá Samfylkingu í SV Heimir Már Pétursson skrifar 16. mars 2009 12:14 Árni Páll Árnason hreppti fyrsta sætið í prófkjörinu en 57 atkvæðum munaði á honum og Lúðvíki Geirssyni.
Engin kæra hefur borist vegna þeirra sem greiddu atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, og reyndust síðan ekki vera á kjörskrá. Stjórn kjördænmisráðsins og kjördæmisráðið í heild koma saman til fundar í kvöld. Tæplega 150 manns greiddu atkvæði í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, þótt þeir reyndust ekki vera á kjörskrá. Þessi atkvæði voru meðhöndluð eins og utankjörfundaratkvæði og sett í auðkennd umslög. Kjörstjórn komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að dæma lang flest þeirra ógild, þegar fólkið fannst ekki á kjörskrá. Aðeins munaði 57 atkvæðum á Árna Páli Árnasyni alþingismanni og Lúðvíki Geirssyni bæjarstjóra í Hafnarfirði í fyrsta sætið. Þetta mál minnir á prófkjör flokksins í sama kjördæmi í nóvember 2006 þegar 46 atkvæði skildu Þórunni Sveinbjarnardóttur og Gunnar Svavarsson að í fyrsta sætið. Sex dögum eftir það prófkjör fannst atkvæðakassi á Álftanesi með 87 atkvæðum og var ákveðið að telja þau atkvæði, þótt atkvæðakassinn væri óinnsiglaður og búið að kynna niðurstöðu prófkjörsins. Við talningu þessara atkvæða minnkaði munurinn milli Þórunnar og Gunnars niður í 34 atkvæði, sem dugði þó ekki til að breyta stöðunni og Gunnar Svavarsson hélt fyrsta sætinu. Þessi uppákoma varð til þess að þáverandi formaður kjörstjórnar sagði af sér. Kristján Guðmundsson formaður Kjördæmisráðs Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi segir að í alla staði hafi verið staðið rétt og faglega að framkvæmd prófkjörsins nú. Frestur til að skrá sig í flokkinn eða á stuðningsmannalista hafi verið auglýstur og hann runnið út kl 18 hinn 10. mars, enda hafi netkosning hafist á miðnætti sama daga. Hann segir að stjórn kjördæmisráðsins og kjördæmisráðið muni funda seinnipartinn í dag eða í kvöld um framkvæmd prófkjörsins og þá verði mál þeirra sem kusu en voru ekki á kjörskrá og atkvæði ógild hjá, skoðað eins og annað. Engin kæra hafi hins vegar borist vegna þessa máls og því reikni hann með að niðurstöðurnar standi, enda hafi umboðsmenn frambjóðenda verið við talningu atkvæða og verið sáttir við ákvörðun kjörstjórnar.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Sjá meira