Færri í fitusog og dýrari brjóstastækkanir 16. mars 2009 03:00 Brjóstapúðarnir hafa tvöfaldast í verði Einn stærsti kostnaðarliður brjóstastækkana, brjóstapúðarnir, hafa tvöfaldast í verði. Þórdís Kjartansdóttir og Ólafur Einarsson lýtalæknar segja að lýtalæknar reyni að koma til móts með því að hækka aðgerðirnar ekki um of. „
Við vitum að það er aðallega yngra fólkið sem fer í silíkonaðgerðir og fitusog. Þetta eru tvær algengustu fegrunaraðgerðirnar sem framkvæmdar eru og það hefur dregið úr báðumm. Það er tölvuvert minni eftirspurn en hefur verið," segir Guðmundur M.Stefánsson lýtalæknir hjá Domus Medica. Fréttablaðið hringdi í nokkra lýtalækna hér í bæ og samkvæmt lauslegri könnun blaðsins virðist sem yngra fólk haldi að sér höndum og minni eftirspurn sé eftir fitusogsaðgerðum hjá hópnum undir fertugu. Ólafur Einarsson segir það vera sína tilfinningu að það sé yngra fólkið sem haldi að sér höndum. „Ég er búinn að vera mjög lengi í þessu og í kringum 1991 var dálítil lægð í efnahagslífinu og þá fannst mér þetta lýsa sér svipað - að yngra fólk kom minna. En lífið heldur áfram og við lýtalæknar reynum að koma til móts við fólk í kreppunni. Þannig hafa öll aðföng hækkað mikið og brjóstastækkunarpúðarnir tvöfaldast í innkaupsverði. Brjóstaaðgerðirnar hafa þó ekki hækkað nema kannski um 20-30 prósent þannig að við lýtalæknar erum að taka á okkur stóran hluta þessara hækkana sjálfir." Þórdís Kjartansdóttir lýtalæknir hjá Læknastððinni tekur í sama streng. „Í fyrsta skipti er ég með mismunandi verð á brjóstastækkunum eftir því hvaða púða ég er að nota. Dropalagapúðarnir eru þar dýrari á móti þeim hringlaga. Margir púðarnir hafa tvöfaldast í verði og þetta er auðvitað dýrari hlutinn af aðgerðinni þannig að ég hef tekið á mig að hluta til kostnaðinn", segir Þórdís og bætir við að breytingin sem hún sjái sé helst í fækkun í fitusogsaðgerðum. Guðmundur segist ekki viss hvort lýtalæknar hafi samt fundið fyrir botninum ennþá. „Maður verður að taka þennan skell á sig í þeirri von að gengið leiðrétti sig eitthvað. Það er ekki hægt að hleypa öllum kostnaði út í verðlagið eins og sum fyrirtæki virðast nú gera." - jma
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira