Innlent

Vilja færa eignir til Keflavíkurflugvallar ohf.

Farþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll hefur fækkað undanfarið, en fjöldinn er í samræmi við nýjustu áætlanir segir stjórnarformaður félagsins.Fréttablaðið/Hari
Farþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll hefur fækkað undanfarið, en fjöldinn er í samræmi við nýjustu áætlanir segir stjórnarformaður félagsins.Fréttablaðið/Hari

Enn er unnið að því að koma saman stofnefnahagsreikningi Keflavíkurflugvallar ohf., nýs opinbers hlutafélags á Keflavíkurflugvelli. Stefnt er á framhaldsstofnfund fyrir lok mars þar sem efnahagsreikningurinn verður kynntur, segir Jón Gunnarsson, stjórnarformaður félagsins.

Keflavíkurflugvöllur ohf. varð til með sameiningu Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar og Flugmálastjórnar á Keflavíkurflugvelli, og tók til starfa um síðustu áramót.

Erfitt hefur verið að koma saman stofnefnahagsreikningi félagsins, enda staðan talsvert önnur en þegar stofnun þess var ákveðin. Erlend lán félagsins hafa hækkað, og farþegum sem fara um flugvöllinn fækkað. Þá hefur velta fríhafnarinnar minnkað.

Jón segir að nú sé unnið hörðum höndum að því að auka eigið fé félagsins. Þar sem fé liggi ekki á lausu hjá ríkinu þessa dagana sé reynt að styrkja efnahagsreikninginn með því að færa eignir inn í félagið, svo stofnefnahagsreikningur verði ásættanlegur. Hann verði varla eins digur og upphaflega hafi verið ráðgert, þótt hann verði viðunandi fyrir félagið.

Ekki stendur til að flytja eignir sem mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins greiddi fyrir til félagsins, þótt það muni fá afnotarétt að sumum þeirra, segir Jón. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×