Málþófið skipulagt upp á hverja mínútu 3. desember 2009 06:30 Alþingi. Mynd/ Valgarður.
Stjórnarandstaðan styðst við stundaskrá um hver skuli ræða Icesave og hvenær. Einnig er tekið fram hverjir skuli veita ræðunni andsvar. Blaðið hefur komist yfir eintak af stundatöflunum, þar sem tilgreindur er ræðumaður úr stjórnarandstöðu, hvenær ræða hans byrjar og hvenær henni lýkur; heildarlengd ræðutíma, lengd andsvara og hvaða tveir þingmenn úr stjórnarandstöðu skuli veita stjórnarandstöðuþingmanninum andsvar. Þessi tiltekna stundatafla spannar tímann frá klukkan 16.00 síðastliðinn mánudag og til klukkan 01.30 um nóttina, en sú dagskrá riðlaðist reyndar, þar sem farið var að ræða um fjáraukalög. „Þetta stríðir gegn anda þingskapalaga," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra og finnst sorglegt að sjá hvernig tíminn fari forgörðum, þegar þingið standi frammi fyrir gríðarlega erfiðum málum. Þingsköp séu ekki þannig hugsuð að fólk sé í andsvörum við sjálft sig. „Ég hef aldrei heyrt um það áður að menn séu með þaulskipulagt stundaplan um þófið. Það má kannski hrósa þeim fyrir þetta, hvað þau eru skipulögð, en þetta sýnir náttúrlega hvað er á ferðinni," segir fjármálaráðherra. Stjórnarandstaðan taki sér mikla ábyrgð með því að hindra réttkjörinn meirihluta þings að störfum. „Þetta er ekki það sem landið þarf á að halda," segir hann. Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar, segir stundaskrána til merkis um hversu góð samvinna sé um að draga fram alla þætti málsins. Hún segir Icesave-málið þannig vaxið að það sé „einmitt sannfæringin sem dregur okkur áfram", spurð hvort það geri ekki lítið úr sannfæringu hvers og eins þingmanns, að veita andsvar samkvæmt stundatöflu. „Mjög oft er fólk á staðnum sem langar til að taka þátt í umræðunni og þá gerir það bara það. Þá skiptir engu máli hvort það sé skráð með andsvar. Þetta er spilað eftir eyranu, þótt það liggi fyrir grunnplan. Ef einhver þarf að fara frá, þá bara annaðhvort skiptir hann við einhvern eða fer," segir Margrét. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki líta svo á að stjórnarandstaðan beiti málþófi. Það sé ríkisstjórnarinnar að skýra út hvers vegna hún setur eitt en ekki annað mál á dagskrá. Spurður hvort hann telji að það sé í anda þingskapalaga að ákveða að veita andsvör við ræðu sem ekki hafi heyrst, segir Bjarni: „Þú verður að tala við einhverja þingreyndari menn um það en mig." Samkvæmt þingskapalögum má forseti Alþingis leyfa þingmönnum að veita stutt andsvar við einstökum ræðum. Þar segir að andsvari megi einungis beina að máli ræðumanns, en ekki öðru andsvari. klemens@frettabladid.is
Mest lesið „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira