Með derhúfu í dómsalnum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. september 2009 08:16 Það þýðir ekki að deila við dómarann. Þetta er reyndar ekki Anne Katz heldur starfssystir hennar, Jeanine Pirro, sem einnig starfar í New York.
Deila um klæðaburð lögmanns í réttarsal í New York í fyrra er orðin að dómsmáli. Anne Katz, dómari við undirrétt í Queens í New York brást ókvæða við í mars í fyrra þegar lögmaðurinn Todd Bank, sem var að flytja mál vegna fasteignadeilu fyrir skjólstæðing sinn, birtist í réttarsalnum í gallabuxum, skyrtu og með derhúfu sem á var ritað Operation Desert Storm, sem var heitið á aðgerðum Bandaríkjahers við Persaflóa árið 1991. Dómarinn las Bank pistilinn og sagði klæðaburð hans óvirðingu við réttinn. Dómvörður skipaði Bank að taka húfuna að minnsta kosti ofan og eftir það fékk hann að flytja mál sitt. Hann stefndi hins vegar bæði dómaranum og dómverðinum fyrir að brjóta á honum þann rétt hans að mega tjá sig að vild og klæðast að vild. Dómur er nú fallinn í því máli og var hann Bank ekki í vil. Dómari úrskurðaði að réttarsalur væri umhverfi þar sem ákveðnar hefðir og reglur skyldu haldnar í heiðri og væri dómara heimilt að gera athugasemdir við og banna óviðeigandi klæðnað málflutningsmanna og annarra. Lögmönnum væri hins vegar frjálst að klæða sig að vild utan dómsalarins. Bank hyggst áfrýja málinu og fullyrðir að notkun hans á derhúfu dragi engan veginn úr hæfi dómarans til að dæma í málum.
Mest lesið Stoltur faðir fegurðardrottningar gekk frá Gleðigöngunni með óbragð í munni Innlent Tólf milljónir í segulómtæki sem dró að sér skúringabúnað Innlent Ellefu ára hetja bjargaði systur sinni frá drukknun Innlent Margföld aðsókn í vökvagjöf: „Fólk er ekkert að gera þetta að gamni sínu“ Innlent Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Erlent Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Erlent Barinn við barinn en gerandinn farinn Innlent Áslaug Sigríður Alfreðsdóttir er látin Innlent Telur enn mögulegt að ná samkomulagi Innlent B sé ekki best Innlent Fleiri fréttir Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Hernumin héruð horfi fram á þjóðernishreinsun Vara við afleiðingum samsæriskenninga eftir skotárás á heilbrigðisstofnun Komnir djúpt gegnum línu Úkraínumanna Smyglaði 850 skjaldbökum í sokkum frá Bandaríkjunum Albanese segir Netanyahu í afneitun Sendur til Íslands eftir þrætu um persónuupplýsingar innflytjenda Leiðtogar Evrópu ítreka sjálfsákvörðunarrétt Úkraínumanna Einn látinn og tíu slasaðir eftir stóra sprengingu „Þetta er í rauninni þreifingafundur“ Ákvörðun Trump valdabrölt: „Það á eftir að verða meira svona“ Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Fordæmir dráp á blaðamönnum og vill sjá valkyrjur stíga harðar fram Sagður slaka á kröfum og útiloka ekki landsvæðaskipti Buðu ferðamönnum upp á „stjarnferðalag“ með heimablönduðu froskaeitri Sigar þjóðvarðliðum á götur Washington og setur lögregluna á sitt vald Ákæra stjórnendur flutningaskips vegna skemmda á sæstreng Sagður hafa unnið fyrir fjölmiðlateymi Hamas áður en stríðið hófst Fordæma „markviss“ dráp Ísraela á blaðamönnum á Gasa Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Heimila sölu gervigreindar örflaga til Kína gegn hluta af ágóðanum Eyðilegging eftir skjálfta í Tyrklandi Ástralir hyggjast viðurkenna sjálfstæða Palestínu Drápu tvo blaðamenn og tvo tökumenn vísvitandi Sæti Artúrs logar Fundur Selenskí, Pútíns og Trump á næsta leiti Stór skjálfti reið yfir í Tyrklandi Sjá meira