Logi: Verð áfram með KR Henry Birgir Gunnarsson skrifar 20. september 2009 19:43 Logi Ólafsson. Mynd/Anton „
Ballinu lauk í dag, því miður. Það hefði verið gaman að hafa smá spennu í lokaumferðinni," sagði nokkuð svekktur þjálfari KR, Logi Ólafsson, eftir frábæran sigur hans liðs á Stjörnunni. Sigurinn dugði aftur á móti ekki til. „Það var ekki við því að búast að FH myndi glutra þessari forystu niður en við vildum í það minnsta ekki hafa okkar á hreinu ef þeir myndu misstíga sig." KR stendur uppi titlalaust en komst í undanúrslit í bikar og er svo gott sem búið að tryggja annað sætið í deildinni. „Ég er nokkuð sáttur með sumarið. Ef við horfum á stigin þá erum við að bæta okkur. Sumarið í heildina var ágætt en við erum súrir og svekktir yfir nokkrum leikjum. Það var vont að gera jafntefli við Stjörnuna í Garðabæ og Þrótt hér heima. Svo töpum við gegn Val hér heima þó svo við séum mun betri. Þarna eru glötuð stig sem hefðu sett okkur í blóðuga baráttu við FH. Við ætlum að reyna að velgja þeim enn betur undir uggum næsta sumar," sagði Logi sem á ár eftir af samningi sínum við KR. „Eins og staðan er í dag á ég ekki von á neinu öðru en að ég verði hérna áfram." Það hefur oft farið illa með KR hvað það eru miklar mannabreytingar á milli ára. Logi á ekki von á að slíkt gerist að þessu sinni. „Ég vona að þessu sinni fáum við að halda mannskapnum. Það er óvissa með Andre Hansen og markvarðarstöðuna en við leysum það væntanlega," sagði Logi en Gunnleifur Gunnleifsson er sterklega orðaður við endurkomu í Vesturbæinn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rekinn eftir óásættanleg samskipti við yngri leikmenn Handbolti Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Enski boltinn Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Körfubolti „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Enski boltinn Williams mun spila í einliða leik á Opna bandaríska risamótinu Sport Framlengir þrátt fyrir að liðið sé í verri stöðu Formúla 1 Þrumuræður Guardiola: „Ég er fokking skilinn við fegurstu konu jarðar“ Enski boltinn Rodri genginn í raðir Barcelona Fótbolti Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Íslenski boltinn Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Fótbolti Fleiri fréttir Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Hvetur fólk til að sjá „skemmtilegasta Keflavíkurlið í mörg ár“ Botnar ekkert í Brazell: „Alltaf er hann svo sáttur með allt“ Kveðja Bjarna með miklum söknuði „Hvaða grín er þetta með Gylfa Sig?“ Sjáðu mörkin: Methafinn nýtti löngu köstin og Róbert elskar að mæta Stjörnunni Þróttur situr á toppi Lengjudeildarinnar Ægir fallið og ólíkir leikir í Lengjudeildinni Uppgjörið: Valur - KA 4-4 | Bæði lið hæfilega sátt eftir markasúpu Uppgjörið: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar nálgast annað sætið Sjóðheit Ída Marín kveður FH Sjáðu glæsimark Gylfa, prjónaskap Hauks og KR skora tvö á mínútu „Þetta gekk eins og í sögu“ „Leiðinlegt að segja það en þetta er svo mikið af einstaklingsmistökum“ „Við þurfum að læra í þessum heimi“ Sölvi Geir: „Allt of snemmt að fara að kíkja á töfluna“ „Gott að bjarga sjálfum sér og verja þetta“ „Gylfi skorar af vítapunktinum, það vita það allir“ „Langar bara að verða betri í fótbolta“ Helgi Guðjóns: Tökum eldgömlu klisjuna um einn leik í einu Uppgjörið: ÍBV - ÍA 1-3 | Með þrjú stig upp á fasta landið Uppgjörið: FH - Víkingur R. 2-4 | Fyrsta tap FH í áttatíu daga Uppgjörið: KR – Breiðablik 3-3 | Stig sem skilur lítið eftir sig Jón Daði kvaddi á sama degi og Viðar skoraði fimm „Horfum bara á að enda tímabilið í topp sex“ „Þurfum að læra að spila leiki af þessari stærðargráðu“ „Við þurfum að gefa meira í þetta maður“ „Held að þetta hafi verið góð auglýsing fyrir Bestu deild kvenna“ Uppgjörið: FH-Breiðablik 0-3 | Meistaraafgreiðsla Blika í toppslagnum Uppgjörið: Þór Ak.-Keflavík 0-2 | Fyrsti útisigur Keflavíkur í 99 daga Sjá meira