Innlent

Erfiður auglýsingamarkaður allt þetta ár

 Fram að hausti virtist sem samdráttur á auglýsingamarkaði næmi 35 prósentum, en heldur hefur dregið úr samdrættinum á þriðja ársfjórðungi. Fréttablaðið/Anton
Fram að hausti virtist sem samdráttur á auglýsingamarkaði næmi 35 prósentum, en heldur hefur dregið úr samdrættinum á þriðja ársfjórðungi. Fréttablaðið/Anton

Samdráttur á auglýsingamarkaði á þessu ári gæti numið þriðjungi eða svo, að mati Ara Edwald, forstjóra 365. Hann segir stöðuna heldur hafa batnað í haust og vonar að botni sé náð.

Óskar Magnússon, útgáfustjóri Morgunblaðsins, segir auglýsingamarkaðinn hafa verið mjög erfiðan allt þetta ár og frá hruni í fyrra. „En þó eru ýmis teikn á lofti um að eitthvað muni glæðast á næsta ári. Fyrirtæki á borð við bankana eru að koma sér í meiri stellingar en þau hafa getað gert og ég vænti þess að bankarnir þurfi að stunda eðlilega markaðsstarfsemi.“

Óskar segist jafnframt vona að það sama komi til með að eiga við um bílasölu, að þar taki markaður að glæðast eitthvað sem og í fasteignum.

„Almennt getum við hjá Árvakri sagt að við þær breytingar sem hér hafa verið gerðar hefur áhugi á blaðinu aukist með ýmsum hætti og það er út af fyrir sig gott. Við teljum okkur því ágætlega sett í samkeppninni ef þetta fer eitthvað að taka við sér.“

Ari Edwald segir að fram undir haustið hafi menn þar á bæ metið sem svo að samdráttur á auglýsingamarkaði næmi um 35 prósentum á þessu ári og kæmi hvað harðast niður hjá prentmiðlum. „En markaðurinn er aðeins að taka við sér. Svo skiptir líka máli að viðmiðunarmánuðirnir eru komnir í að vera mánuðirnir eftir hrun.“

Þá segist Ari líka hafa á tilfinningunni að samdráttur í auglýsingatekjum 365 sé minni en annars staðar. Fjölmiðlar félagsins, Fréttablaðið, Stöð 2 og Vísir, hafi aukið hlut sinn eitthvað og því dregist minna saman en markaðurinn í heild. Almennt verði bati þó hægur. „Við gerum ráð fyrir mjög lítilli raunaukningu auglýsingatekna á næsta ári.“ - óká

Ari Edwald



Fleiri fréttir

Sjá meira


×