Sviss fór í tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu 2001 Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 15. júlí 2009 17:09 Tillaga sjálfstæðismanna um tvöfalda atkvæðagreiðslu er meðal þess sem nú er til umræðu í þinginu. Mynd/Vilhelm
Svisslendingar fóru leið tvöfaldrar þjóðaratkvæðagreiðslu árið 2001 þegar til stóð að ganga tafarlaust til aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Þetta kemur fram á vef Sjálfstæðisflokksins, en þingmenn flokksins hafa reynt að vinna tillögu flokksforystunnar um tvöfalda þjóðaratkvæðagreiðslu fylgis í þinginu undanfarna daga. Fyrir þá sem ekki vita gengur tvöföld atkvæðagreiðsla um aðild að Evrópusambandinu út á það að þjóð kjósi fyrst um hvort ganga skuli til viðræðna yfir höfuð, og síðan aftur um samninginn sem ríkinu býðst. Þingmenn ríkisstjórnarinnar hafa gagnrýnt þá leið og sagt að fyrri atkvæðagreiðslan fari fram án þess að þjóðin hafi nauðsynlegar forsendur. Í viðtali við Morgunblaðið á mánudag sagði Helgi Hjörvar, þingmaður Samfylkingar, að engin þjóð hafi farið út í slíkt. Það skiptir þó engum togum að Svisslendingar, félagar Íslendinga í Fríverslunarsamtökum Evrópu, hafi farið leið tvöfaldrar atkvæðagreiðslu þann fjórða mars fyrir átta árum. Þá hafnaði svissneska þjóðin tillögu um aðildarviðræður við ESB með talsverðum meirihluta að því er fréttastofa BBC greindi frá á þeim tíma. Hópurinn sem stóð að baki tillögunni kallaði sig Nýju svissnesku Evrópuhreyfinguna, en tillagan var kölluð Já við Evrópu. Hópurinn safnaði hundrað þúsund undirskriftum og gat því lögum samkvæmt knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu um málið. Á þeim tíma var verðbólga í Sviss minni en í ESB, hagvöxtur meiri og atvinnuleysið aðeins um tvö prósent að því er kemur fram í frétt BBC. Þótti því mörgum Svisslendingum meira tapað en unnið með aðild, auk þess sem landið var þegar aðili að sérstökum tvíhliða samningum við sambandið.
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Fleiri fréttir Starfsfólki hafi verið boðið lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Sjá meira