Þingið marki Icesave pólitíska umgjörð 15. júlí 2009 05:15 samningamaður Svavar segir vexti nú vera mun óhagstæðari en þegar samningurinn um Icesave var gerður. Það sé mikil áhætta fyrir þjóðina og þjóðarbúið að fella samningana. Alþingi ráði hins vegar hinni pólitísku umgjörð málsins.
Svavar Gestsson, formaður samninganefndar um Icesave, segir óhjákvæmilegt að Alþingi hafi pólitíska skoðun á því hver verði framgangur samningsins. Hana mætti setja fram hvort sem er í nefndaráliti eða með öðrum hætti. Samninginn sjálfan verði hins vegar að samþykkja eða fella. „Alþingi hlýtur auðvitað að hafa sína skoðun á því til dæmis hvernig framkvæmd samningsins verður háttað á komandi árum. Það er Alþingi sem ræður hinni pólitísku umgjörð málsins, eins og fjármálaráðherra sagði í viðtali í gær.“ Svavar segir að þróunin hafi sýnt að samningurinn sé um margt hagstæður. Margt í umhverfinu nú sé orðið óhagstæðara en var þegar hann var gerður. Í honum sé miðað við 4,30 prósenta SIRR-vexti og 125 punkta álag ofan á það; alls 5,55 prósenta vexti. SIRR-vextir séu í dag 4,70 prósent. Svavar segir að með því að hafna samningnum sé verið að taka mikla áhættu fyrir þjóðina og þjóðarbúið. Svavar segir gríðarlega mikilvægt að náðst hafi það ákvæði í samninginn að hægt sé að segja honum upp og borga upp fáist fjármagn á hagstæðari kjörum. Þá sé lánstíminn lengri en gengur og gerist og mikilvægt sé fyrir þjóðina að fá efnahagslegt skjól í sjö ár. Hann hafnar því að samningsstaða Íslendinga hafi verið vonlaus. Brautin hafi meðal annars verið lögð með undirskrift Davíðs Oddssonar 15. nóvember þar sem ábyrgð Íslendinga á skuldbindingunum sé viðurkennd. Þá hafi ramminn utan um viðræðurnar verið dreginn í samþykkt Alþingis frá 5. desember. Svavar segir Brussel-viðmiðin hafa veitt viðspyrnu, en þar leggja Evrópska efnahagssvæðið og alþjóðasamfélagið áherslu á að tekið yrði tillit til þeirra erfiðu og fordæmalausu aðstæðna sem Ísland er í. Samninganefndin hafi síðan miskunnarlaust beitt frystingu Breta og minnt á að Íslendingar hefðu skaðast af beitingu hryðjuverkalaganna. Þá hafi því verið beitt að þarna hafi komið í ljós að regluverk um innstæður í Evrópu væri gallað. Það að samþykkt hafi verið að eignir Landsbankans gengju upp í skuldir hafi líka hjálpað til. Samningsstaðan hafi því ekki verið vonlaus, en helgast af því að ákveðið hafi verið í nóvember að borga skuldirnar. Ekki er reiknað með að þingnefndir ljúki umfjöllun um málið fyrr en eftir helgi. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent Mælti sér mót við barn og réðst á það Innlent Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Fleiri fréttir „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Útiloka ekki samstarf en sjá djúpa gjá í málefnunum Alvarlegar afleiðingar „brúnkuefnis“ og meirihlutinn sem er ekki fyrsti kostur Sjá meira
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent