Segir lögfræðinga Seðlabankans blekkja 15. júlí 2009 04:30 seðlabankinn Minnisblað ritað á bréfsefni Seðlabankans um Icesave var ekki umsögn bankans heldur persónulegt mat lögfræðinganna tveggja sem skrifuðu undir það.fréttablaðið/heiða
Árni Þór Sigurðsson, formaður utanríkismálanefndar, segir lögfræðinga Seðlabankans hafa blekkt utanríkismálanefnd. Minnisblað sem Sigríður Logadóttir aðallögfræðingur og Sigurður Thoroddsen, lögfræðingur á Alþjóða- og markaðssviði bankans, lögðu fyrir utanríkismálanefnd Alþingis, var ekki umsögn Seðlabankans. Þetta áréttaði Sigríður í tölvubréfi á þriðjudagskvöld. Nefndarmenn stóðu í þeirri meiningu að um formlegt álit bankans væri að ræða. Álitið er neikvætt í garð samninganna og hafði vakið nokkur viðbrögð. Í bréfinu segir Sigríður: „Við lögfræðingar SÍ viljum undirstrika að minnisblaðið til utanríkismálanefndar er samantekt á því sem kom fram á fundinum þar sem lögfræðingar mættu sem gestir og ber ekki að líta á sem umsögn Seðlabankans sem slíka.“ Árni Þór Sigurðsson, formaður nefndarinnar, segir að alltaf hafi legið ljóst fyrir að verið væri að leita eftir umsögn bankans, ekki tveggja lögfræðinga. Aðrir nefndarmenn sem Fréttablaðið talaði við tóku undir það. Ekki náðist í Sigríði í gær, en í svari frá Seðlabankanum segir að minnisblaðið sé hluti af gögnum sem notuð eru við gerð álits fyrir fjárlaganefnd, en fulltrúar bankans munu kynna það fyrir nefndinni í dag. Minnisblaðið sé því vinnugagn sem verði notað við lokaútgáfu álitsins. Minnisblaðið er ritað á bréfsefni Seðlabankans. Árni Þór var harðorður í garð Sigríðar og í viðtali við Ríkis-útvarpið talaði hann um „einkaflipp“ starfsmanna bankans. „Fyrir mér virðist sem viðkomandi starfsmaður sé enn að vinna fyrir Davíð Oddsson.“ Þessi ummæli vöktu hörð viðbrögð á Alþingi og Ólöf Nordal og Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, kröfðust þess að Árni bæði starfsmennina afsökunar. Svavar Gestsson, formaður samninganefndarinnar um Ice-save, segist vona að nefndin skoði álit lögfræðinganna eins og önnur álit. Það hafi þó allt aðra stöðu nú þegar búið sé að upplýsa að það er ekki álit Seðlabankans. Það breyti því þó ekki að það verði að skoða samviskusamlega, líkt og ótal önnur álit og greinargerðir sem hjálpi mönnum að komast að skynsamlegri niðurstöðu. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Innlent Hundraða saknað eftir stærðarinnar skyndiflóð Erlent Myrti foreldra sína, ömmu, systur og fjögur börn Erlent Erlendir fjölmiðlar beina sjónum að þjóðaratkvæðagreiðslunni Erlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fleiri fréttir Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Sjá meira