Eldflaugarskot á Reykjanesskaga í dag 23. ágúst 2009 10:25 Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Magnús Már og félagar skjóta upp eldlfaug, en þeir hafa þó aldrei skotið jafnöflugri og nú stendur til. Mynd/Valli
Öflugustu eldflaug, sem Íslendingar hafa smíðað til þessa, verður skotið á loft á Reykjanesskaga eftir hádegi í dag. Eldflaugafélagið Amateur Icelandic Rocketry stendur fyrir eldflaugarskotinu, sem verður klukkan hálf tvö á Höskuldarvöllum nálægt fjallinu Keili. Flaugin er átta kíló að þyngd og reiknað er með að hún nái 1.000 kílómetra hraða á klukkustund og þriggja kílómetra hæð, en svo hátt hafa íslenskar eldflaugar ekki áður komist. Tveggja kílóa þung eldsneytisblanda, gerð úr saltpétri og sykri, knýr flaugina í 25 sekúndur en eftir það á hún að svífa til jarðar í fallhlíf. Magnús Már Guðnason, formaður eldflaugafélagsins, segir að vindhraði hafi verið í mesta lagi í morgun en spáð væri að hann myndi lægja og taldi að vindurinn myndi ekki koma í veg fyrir skotið. Fyrir þá sem vilja fylgjast með má geta þess að leiðin að Höskuldarvöllum er greiðfær en þangað er hátt í klukkustundarakstur úr Reykjavík. Farið er af Reykjanesbraut á mislægum gatnamótum á móts við Kúagerði inn á malarveg. Skotsvæðið verður girt af og er áhorfendum bent á að passa að börn leiki ekki lausum hala þar nærri. Þótt þetta verði stærsta eldflaugaskot af hálfu Íslendinga hefur mun stærri flaugum verið skotið áður á loft hérlendis. Það gerðu franskir vísindamenn á Mýrdalssandi á árunum 1964 og 1965 þegar þeir skutu Dragon-flaugum út í geim til að rannsaka Norðurljósin.
Mest lesið Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Innlent Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Erlent Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Innlent Viðvaranirnar appelsínugular og hviður yfir 40 metrum á sekúndu Veður Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Innlent Loka Holtavörðuheiði í hádeginu og um Suðurlandið strax í fyrramálið Veður „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Erlent Fleiri fréttir Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Lilja mætt aftur á Alþingi Óveðrið hefur áhrif á flugáætlun Icelandair Vanalega óttist fólk að eitthvað hræðilegt sé að gerast Lýstu eftir manni á níræðisaldri „Skynsamlegt að spyrja þjóðina“ Snjóflóð hrifsaði með sér göngugarpa Fólk stillt að mestu á Akureyri „Stórslysalaust“ á Ísafirði í nótt Hvernig greiðir Ragnar Þór atkvæði í ágúst? Gefur skít í helvítishótanir Trumps Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Sjá meira