Fórnalömbin samúðarfull með starfsmanni á plani Valur Grettisson skrifar 3. september 2009 11:25 Mynd úr safni. „
Við finnum til með manninum. Hann þarf greinilega á hjálpa að halda," segir Kristjana Kristjánsdóttir en hún ásamt manni sínum, Raymond McQueen og vinafólki ætluðu að taka bensín á Olís í Norðlingaholti í gærdag. Ætluðu gullna hringinn Starfsmaður bensínstöðvarinnar, sem er af erlendum uppruna, réðst á eiginmann hennar með ofbeldi en kalla þurfti á lögregluna sem handtók hann í kjölfarið. Þau ætla að kæra starfsmanninn. Þá ætlar ungur maður einnig að kæra starfsmanninn en þeim lenti saman þegar ungi maðurinn hugðist koma Raymond til bjargar. Það var á milli tvö og þrjú í gær sem Kristjana og Raymond komu á bensínstöðina við Norðlingaholtið. Þau voru á leiðinni austur fyrir fjall með vinafólkinu sem er breskt. „Við ætluðum að fara þennan klassíska gullna hring," útskýrir Kristjana. Var hinn ljúfasti Maðurinn hennar lagði óvart við þjónustudælu þegar þau komu á bensínstöðina. Starfsmaður á plani kom út til þeirra og var allur hinn ljúfasti að sögn Kristjönu. „Ég gerði þá grín að því að breski maðurinn minn kynni ekki að lesa ensku leiðbeiningarnar," sagði Kristjana við starfsmanninn en á dælunni við hliðina á stóð self service. Maðurinn hennar færði bílinn að sjálfsafgreiðslunni og byrjaði að dæla bensíninu. Kristjana segist þá hafa gengið inn í verslunina en starfsmaðurinn fylgdi henni eftir. Hún spurði hann þá hvar hún gæti borgað og hann benti henni á afgreiðslukassana sem voru inn í búðinni. „Því næst fór ég á klósettið og í kjölfarið ákváðum við að fá okkur pylsu," segir Kristjana sem stóð í röðinni ásamt vinafólki. Hún segir að starfsmaðurinn hafi alltaf fylgt henni eftir en hún hafi ekki áttað sig á því hvað honum gekk til. Hvað skilur þú ekki? „Allt í einu segir hann við mig: Hvað skilur þú ekki? Það eru sjö kassar þarna, þú átt að borga þar," segir Kristjana sem brá talsvert við þessi óvæntu sinnaskipti. Hún svaraði honum fullum hálsi og benti honum á að þau ætluðu líka að fá sér pylsu. Eiginmaður Kristjönu kom til þeirra og beið með þeim í röðinni. „Starfsmaðurinn segir skyndilega við mig illur: Ætlar þú ekki að borga?" segir Kristjana og bætir við að þá hafi starfsmaðurinn séð manninn hennar sem brosti að hinum sérkennilegu aðstæðum. Þá á starfsmaðurinn að hafa spurt af hverju hann væri að hlæja og steytti hnefa sínum framan í Kristjönu. „Maðurinn minn segir honum þá að það væri skárra að hann kýldi sig frekar en mig. Og þá hjólaði hann bara í Raymond," segir Kristjana en atburðarásin varð hröð eftir það. Starfsmaðurinn henti Raymond upp að sælgætisrekka sem var í versluninni. Þeir tókust þarna á og mikið öngþveiti myndaðist. Ungur maður til hjálpar „Ungur maður sem var bara að borða þarna kom okkur til aðstoðar," segir Kristjana en ungi maðurinn reyndi að stöðva átökin en án árangurs. Starfsólkið hringdi strax á lögregluna og reyndi að stöðva áflogin. Að lokum tókst þeim að róa manninn. Lögreglan kom á vettvang og handtók hann. Skýrsla var tekin af starfsmanninum og honum sleppt í kjölfarið. „Þetta var hræðilegt. Við vorum varla komin inn í verslunina þegar við vorum þjófkennd," segir Kristjana en þeim var öllum verulega brugðið eftir atvikið. „Það var ekki fyrr en á Selfossi sem við gátum haldið á kókflöskunum án þess að hella úr þeim." Samúð með starfsmanni á plani Kristjana segir starfsmanninn hafa alla sína samúð. Hún segir starfsfólk bensínstöðvarinnar hafa verið áfalli en maðurinn hafi aldrei sýnt af sér slíka hegðun að þeirra sögn, heldur þvert á móti. „Ég veit ekki af hverju, en hann bara snappaði," segir Kristjana. Hún segist þakklát starfsfólki bensínstöðvarinnar sem hafa staðið sig ljómandi vel í þessum aðstæðum. Hún segir yfirmann bensínstöðvarinnar hafa hringt í þau og það sé vel hlúið að þeim. Hún segir málið næstum spaugilegt þegar þau hugsa til baka. „Við vorum einmitt að grínast með það að við þyrftum að hafa samband við Fóstbræður og segja þeim frá þessu," segir hún sem þótti atvikið minna frekar á glensatriði í anda grínþátta. Ætla að kæra Þau hjónin ætla að kæra starfsmanninn, „þó hann gæti átt erfitt, og ekki að ég viti eitthvað um það, þá á hann náttúrulega ekki að komast upp með þetta," segir Kristjana. Aðspurð hvernig þeim líði segir Kristjana að þau taki málinu nokkuð létt. Verra sé þó að Raymond er meiddur á vinstri hendi en það er sennilega ekki mjög alvarlegt. „Ég vona bara að þetta fæli mann ekki frá bensínsstöðvum í framtíðinni," segir Kristjana hlæjandi. Þess má geta að manninum hefur verið sagt upp.
Mest lesið „Okkur langar að börnin okkar fái öruggan stað til að vera á“ Innlent Lífstíðarfangelsi fyrir að selja dóttur sína Erlent Leitinni að sundmanninum lokið að sinni Innlent Tapaði 20 milljónum á svipstundu við að samþykkja beiðni Innlent Sofandi á byggingarsvæðinu og „í vandræðum með vin sinn“ Innlent Utanríkisráðherra Breta á Íslandi: „Gleður mig að Ísland vill vera með í bandalagi viljugra þjóða“ Innlent Hamas hafna líklegast vopnahléstillögu Trump Erlent Ísrael samþykkir vopnahlé Trumps Erlent Barn fórst í Hvítá í gær Innlent Ákærður fyrir að keyra á hóp fólks í Liverpool Erlent Fleiri fréttir Sofandi á byggingarsvæðinu og „í vandræðum með vin sinn“ „Okkur langar að börnin okkar fái öruggan stað til að vera á“ Utanríkisráðherra Breta á Íslandi: „Gleður mig að Ísland vill vera með í bandalagi viljugra þjóða“ Biblíur og Kjarval sameinast í Vestmannaeyjum Tapaði 20 milljónum á svipstundu við að samþykkja beiðni Sjaldséð heimsókn utanríkisráðherra og háar upphæðir sem hverfa Ætla ekki að minnka leyfilegan dagsafla Leitinni að sundmanninum lokið að sinni „Arfavitlaus lausn“ að minnka aflann í hverri veiðiferð Barn fórst í Hvítá í gær Drengurinn er kominn í leitirnar Gróf slagsmál foreldra á fótboltamóti barna reyndust plat Ómetanlegt að koma skilaboðum sinnar kynslóðar á framfæri á svo stórum viðburði Segir ráðgjöf Hafró kippt úr sambandi og „gúmmítékki“ sendur á næstu ríkisstjórn Svæðið sem Veitur vilja girða „óþarflega stórt“ Enn unnið að því að ná dráttarvélinni upp eftir alvarlegt slys í Hvítá Strandveiðifrumvarp „með ólíkindum“ og drama í borðtennisheiminum Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur Kynna bráðabirgðarúfærslu á strandveiðunum Dómur yfir Bergvini óbreyttur en þarf að greiða hærri miskabætur Fjórtán ára á rúntinum Verst þegar barninu líður eins og það sé annars flokks Rétt náði að stilla hjálminn sem bjargaði lífi dótturinnar Átta nemendur með ágætiseinkunn Margt til fyrirmyndar á Íslandi en gerir athugasemd við einangrunarvistun ódæmdra fanga Oscar fluttur úr landi á þriðjudag Sveitastjóraskipti í Reykhólahreppi Stærsti óttinn varð að veruleika á þriðja degi af 90 Fasteignamat fyrir 2026: Seltjarnarnes hástökkvarinn á höfuðborgarsvæðinu Tjaldaði á túni í miðborg Reykjavíkur Sjá meira
Utanríkisráðherra Breta á Íslandi: „Gleður mig að Ísland vill vera með í bandalagi viljugra þjóða“ Innlent
Utanríkisráðherra Breta á Íslandi: „Gleður mig að Ísland vill vera með í bandalagi viljugra þjóða“
Utanríkisráðherra Breta á Íslandi: „Gleður mig að Ísland vill vera með í bandalagi viljugra þjóða“ Innlent