Bílar í einkaeigu notaðir við lögregluaðgerðir Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 20. júlí 2009 09:53 Innan úr lögreglubíl. Mynd/GÞS
Jeppi og rúta í einkaeigu voru meðal þeirra farartækja sem notuð voru til að stöðva ökuníðinginn sem ók stolnum bíl á ofsahraða undan lögreglu inn Hvalfjörðinn í gærkvöld. Bílunum hafði verið lagt þvert yfir veginn í Hvalfirðinum og var ætlað að skapa vegatálma til að fyrirbyggja að maðurinn kæmist á þjóðveg eitt. Bíllinn var þó neyddur út af veginum áður en hann kom að tálmanum. Í fréttum RÚV er sagt frá því að bílarnir hafi verið gerðir upptækir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu kemur ekkert fram í bókun um málið um tildrög þess að bílarnir tveir voru notaðir í aðgerðum lögreglu. Gunnar Hilmarsson, aðalvarðstjóri, segist þó ekki telja að lögregla hafi tekið bílana ófrjálsri hendi og þótti líklegra að vegfarendurnir hefðu boðið fram aðstoð sína. Þó er ljóst að lögregla hefur heimild til að kveða sér til aðstoðar almenna borgara, og ber þeim skylda til að verða við því ef velferð þeirra er ekki stofnað í hættu. Í lögreglulögum kemur fram að slíkir meðreiðarsveinar lögreglu njóta sömu verndar og aðrir lögreglumenn, meðal annars til bótagreiðslu úr ríkissjóði vegna munatjóns. Þeim, sem geta veitt nánari upplýsingar um tildrög þess að bílarnir voru notaðir í vegatálmann, er bent á að hafa samband við fréttastofu í síma 512-5200.
Tengdar fréttir Á sjúkrahúsi eftir ofsaaksturinn í gær Karlmaður á þrítugsaldri, sem reyndi í gær að komast undan lögreglunni með ofsaakstri á stolnum bíl og endaði úti í skurði við norðanverðan Hvalfjörð, er enn á sjúkrahúsi vegna meiðsla sem hann hlaut í byltunni. Hann er þó ekki alvarlega meiddur og verður útskrifaður í dag. 20. júlí 2009 08:19 Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Innlent Fleiri fréttir Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Sjá meira
Á sjúkrahúsi eftir ofsaaksturinn í gær Karlmaður á þrítugsaldri, sem reyndi í gær að komast undan lögreglunni með ofsaakstri á stolnum bíl og endaði úti í skurði við norðanverðan Hvalfjörð, er enn á sjúkrahúsi vegna meiðsla sem hann hlaut í byltunni. Hann er þó ekki alvarlega meiddur og verður útskrifaður í dag. 20. júlí 2009 08:19