Innlent

Hneig niður fyrir utan Krónuna

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint. MYND/ANTON

Ungur maður hneig niður fyrir utan Krónuna úti á Granda um hádegisbil í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu hlaut maðurinn höfuðáverka eftir árás nokkurra aðila og var fluttur á slysadeild.

Talið er að maðurinn hafi orðið fyrir árásinni í nærliggjandi húsi en ekki er vitað hve margir veittust að manninum. Lögregla telur að um innbyrðis átök sé að ræða vegna óreglu þessarar einstaklinga. Málið er í rannsókn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×