Spánverjar sanna forvarnagildi drykkju Atli Steinn Guðmundsson skrifar 19. nóvember 2009 08:42 Loksins nær einhver að sýna fram á að dagdrykkja er holl.
Dagleg áfengisdrykkja minnkar hættuna á hjartasjúkdómum hjá karlmönnum um rúmlega þriðjung samkvæmt nýrri spænskri rannsókn. Rúmlega 40.000 manns tóku þátt í rannsókn spænskra heilbrigðisyfirvalda á áfengisdrykkju og afleiðingum hennar, 15.000 karlmenn og 26.000 konur. Rannsóknin tók heilan áratug og benda niðurstöðurnar ótvírætt til þess að dagleg áfengisneysla geti dregið verulega úr hættu á hjartasjúkdómum. Því miður nánast eingöngu hjá karlmönnum samt. Karlar sem drekka átta léttvínsflöskur á viku eru 35 prósent ólíklegri til að fá sjúkdóma sem tengjast hjartanu en þeir sem minna drekka og sé drykkjan aukin enn meir og allt að ellefu staup af sterku áfengi drukkin á hverjum degi minnka hjartasjúkdómalíkur um allt að 50 prósent. Fylgnin reyndist þó töluvert minni meðal kvennanna sem þátt tóku í rannsókninni. Ýmsir sérfræðingar ráku þegar upp ramakvein þegar fréttist af rannsókninni og bentu þegar í stað á að þótt áfengisdrykkja gæti hugsanlega dregið úr líkum á vissum tegundum hjartasjúkdóma væri það dagljóst að hún stóryki líkur ýmissa annarra sjúkdóma og var listinn yfir þá all-langur. Spánverjar virðast hins vegar hafa litlar áhyggjur af því enda með harðskeyttari drykkjumönnum Evrópu. Hvað eiga þeir svo sem að gera annað þegar atvinnuleysi þjóðarinnar mælist 20 prósent?
Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Innlent Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Fleiri fréttir Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Sjá meira