Átti að fá 40 þúsund evrur fyrir smyglið Jóhanna Sigþórsdóttir skrifar 24. febrúar 2009 04:00 Sakborningar huldu andlit sín áður en aðalmeðferð hófst í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Á myndinni, auk þeirra, má sjá Helga Jóhannesson hrl. verjanda Þorsteins Kragh, Pál Arnór Pálsson hrl. verjanda Jacobs, svo og dómtúlk lengst til hægri. Vísir/GVA
Hollendingurinn Jacob Van Hinte kvaðst fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær hafa átt að fá 40.000 evrur fyrir að koma húsbíl, hlöðnum fíkniefnum, hingað til lands. Hann er ákærður, ásamt Þorsteini Kragh, fyrir að hafa ætlað að smygla nær 200 kílóum af kannabisefnum og einu og hálfu kílói af kókaíni til landsins í húsbílnum. Aðalmeðferð í þessu umfangsmikla fíkniefnamáli hófst í héraðsdómi í gær. Við réttarhöldin í gær kvað Hollendingurinn tvo breska menn, Bill og Jim, hafa staðið á bak við smyglið. Hann hefði átt að fara með húsbílinn á tjaldstæði, þegar til landsins væri komið, og þar yrði haft samband við hann. Í réttarsalnum kom í ljós að Hollendingurinn var ákaflega „gleyminn“ á símtöl og símanúmer. Hann sagðist hafa verið með marga síma þegar undirbúningur smyglsins stóð sem hæst en myndi ekki númer þeirra. Ekki heldur á rauðum Samsung-síma sem hann var með á sér við handtöku.Þorsteinn Kragh.Spurður um hvers vegna hann hefði bent á Þorstein Kragh sem vitorðsmann sagðist hann hafa gert það til að saga sín væri trúverðugri, hann hefði hugsanlega losnað úr einangrun og fengið léttari dóm. Þorsteinn hefur neitað allri sök. Fram kom að þegar Þorsteinn og Hollendingurinn dvöldu saman á Litla-Hrauni breytti sá síðarnefndi vitnisburði sínum og sagði Þorstein saklausan. Hann hafði þó áður sagt Þorstein ganga undir gælunafninu „Kimmi“ og bent á mynd af Þorsteini sem „Kimma“ hjá lögreglu. Þá harðneitaði Hollendingurinn að hafa vitað af kókaíninu í bílnum. Honum og Þorsteini bar ekki saman um hvort eða hversu oft þeir hefðu hist í Amsterdam. Hins vegar var Þorsteinn mættur til að taka á móti Hollendingnum á Seyðisfirði. Þorsteinn kvaðst hafa talið sig vera að taka á móti 70 til 80 ellilífeyrisþegum á 25 húsbílum vegna ferðaþjónustustarfa sinna. Í dómsal kom fram að óskráður frelsissími með tilteknu númeri var talinn hafa verið notaður við skipulagningu fíkniefnasmyglsins. Sá sími og einkasími Þorsteins voru oft staddir á sömu slóðum. Þorsteinn gat ekki skýrt það. Ekki heldur hvers vegna pin-númer beggja símanna var 6969, það sama og hann notaði á Skype-samskiptaforritinu.
Mest lesið Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Skipagöngin samþykkt eftir pólitísk hrossakaup Fréttir Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Innlent Fullyrti að samkomulag yrði undirritað og sundið opnað Erlent 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Veður Límdu efnin á fætur sína Innlent Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Sagnfræðirannsóknir, upptaka evru, menntakerfið og málefni barna Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Sjá meira
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent