Lífið

N-listinn aftur í sviðsljósið

David Lynch og N-listinn sálugi deila sömu hugsjónum; að hugleiðsla lítils hóps geti haft veruleg áhrif á þjóðarsálina, virkjað kraftinn.
David Lynch og N-listinn sálugi deila sömu hugsjónum; að hugleiðsla lítils hóps geti haft veruleg áhrif á þjóðarsálina, virkjað kraftinn.

„Við fengum 995 atkvæði, stefndum alltaf að því að koma manni inn og fá þannig eitthvað fjármagn í kassann,“ segir Bjarki Björgúlfsson, nemi í Bretlandi. Hann var á lista Náttúrlagaflokkans í Alþingiskosningunum árið 1995 sem boðaði þar innhverfa íhugun til hjálpar Íslendingum; að lítill hópur fólks myndi stunda þessa hugleiðslutækni og ná þannig að virkja kraft þjóðarinnar enn frekar.

Þetta hringir kannski einhverjum bjöllum enda sami boðskapur og bandaríski kvikmyndaleikstjórinn David Lynch hyggst flytja á fyrirlestri sínum í Háskólabíói á laugardaginn. „Þetta er óneitanlega nokkuð skondið og eflaust hefði framboð okkur hlotið meiri hljómgrunn í dag en þá,“ segir Bjarki.

Hann kveðst í dag ekki vera dyggur fylgismaður innhverfr­ar íhugunar en grípur til hennar þegar mikið liggur við. Og ber henni vel söguna. „Já, ég get alveg sagt að mér leið öðruvísi, ég var yfirvegaðari og betur í stakk búinn að takast á við vandamál, það var eins og maður hefði einhverja óútskýran­lega ró og kraft,“ útskýrir Bjarki. Ekki loku fyrir það skotið að þessi tækni gæti nýst íslenskum stjórnmálamönnum þegar þeir takast á við efnahagsvandann.

Forsvarsmaður hópsins var Jón Hannes Halldórsson ferðamálafrömuður en hann lést skömmu eftir kosningar. Framboðið lognaðist í kjölfarið út af og hefur lítið til þess spurst. Reyndar voru bæði systir og bróðir Bjarka á lista og hann hlær þegar hann rifjar upp kosningabaráttuna, „Já, já, þau voru send í þjóðmálaumræðuþætti og ég veit ekki hvað, þetta var rosalega skemmtilegt og kannski hefðum við átt að bjóða okkur aftur fram í ár.“- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.